Keflavík 0-2 ÍBV:
0-1 Tryggvi Guðmundsson ('1)
0-2 Andri Ólafsson ('9)
0-1 Tryggvi Guðmundsson ('1)
0-2 Andri Ólafsson ('9)
ÍBV er komið í annað sæti Pepsi-deildar karla eftir að hafa lagt Keflavík með tveimur mörkum gegn engu á Nettóvellinum í Keflavík í kvöld. Vestmannaeyingar mættu af fullu afli í leikinn og kláruðu hann á upphafsmínútunum.
ÍBV hafði mætt á sama völl í lokaumferðinni í fyrra og tapað gríðarlega mikilvægum leik því sigur þar hefði þýtt að liðið hefði hampað Íslandsmeistaratitlinum í leikslok. Því höfðu þeir harma að hefna í kvöld.
Heimir Hallgrímsson kom á óvart í liðssuppstillingu sinni því hann var með þriggja lína framlínu með þá Andra Ólafsson og Guðmund Þórarinsson á köntunum og Tryggva Guðmundsson fremstan. Hjá Keflavík vantaði Guðjón Árna Antoníusson sem er tognaður aftan í læri.
Andri Ólafsson sem venjulega er á miðri miðjunni en fór þarna á kantin virtist vera að finna sig vel í þessari stöðu því hann lagði upp mark eftir nokkrar sekúndur þegar hann sendi boltann til Tryggva vinstra megin í teignum og markamaskínan þrumaði á nær stöngina og inn í markið, þá aðeins 50 sekúndur á klukkunni.
Andri var heldur ekkert hættur, hann átti hættuleg færi og skoraði gull af marki þegar hann kom ÍBV í 0-2 á níundu mínútu með þrumuskoti utan af velli sem Ómar Jóhannsson markvörður Keflavíkur réði ekki við.
Eftir svona kröftuga byrjun gerðist svo það sem búast mátti við, leikurinn róaðist nokkuð og Eyjamenn fóru að halda betur fenginni stöðu. Undir lok fyrri hálfleiksins meiddist Tryggvi Guðmundsson eftir samstuð við Harald Frey Guðmundsson og þurfti að yfirgefa svæðið í sjúkrabíl í hálfleik.
Bæði lið sköpuðu sér alveg færi til að skora mark en stífur vindur var á annað markið sem menn nýttu sér til að taka föst skot. ÍBV lék með þessum vindi í fyrri hálfleik en Keflvíkingar þeim síðari.
Á 68. mínútu var spurning hvort Andri Steinn Birgisson hafi ekki minnkað muninn fyrir Keflvíkinga en Abel Dhaira markvörður ÍBV varði þá fast skot hans en virtist hafa varið fyrir innan marklínuna þó það sé erfitt að fullyrða það.
Andri Steinn var annars líka í sviðsljósinu í lokin þegar hann tæklaði leikmann Keflavíkur fyrst og fékk dæmda á sig aukaspyrnu en hrinti svo Denis Sytnik framherja ÍBV sem vissulega féll auðveldlega. Örvar Sær Gíslason lyfti aðeins gulu spjaldi á Andra Stein sem verður að teljast undarlegur dómur, Andri Steinn slapp vel þarna.
Keflavík: Ómar Jóhannsson, Brynjar Örn Guðmundsson, Haraldur Freyr Guðmundsson, Adam Larsson, Goran Jovanovski, einar Orri Einarsson, Andri Steinn Birgisson, Jóhann Birnir Guðmundsson, Magnús Sverrir Þorsteinsson, Guðmundur Steinarsson, Hilmar Geir Eiðsson.
Varamenn: Árni Freyr Ásgeirsson (m), Bojan Stefán Ljubicic, Ásgrímur Rúnarsson, Magnús Þórir Matthíasson, Magnús Þór Magnússon, Grétar Ólafur Hjartarson, Viktor Smári Hafsteinsson.
ÍBV: Abel Dhaira, Kelvin Mellor, Eiður Aron Sigurbjörnsson, Rasmus Christiansen, Matt Garner, Andri Ólafsson, Tonny Mawejje, Finnur Ólafsson, Guðmundur Þórarinsson, Tryggvi Guðmundsson, Þórarinn Ingi Valdimarsson.
Varamenn: Brynjar Gauti Guðjónsson, Yngvi Magnús Borgþórsson, Anton Bjarnason, Arnór Eyvar Ólafsson, Denis Sytnik, Guðjón Orri Sigurjónsson (m), Ian Jeffs.
Aðstæður: Stífur vindur á annað markið annars bjart og 9 stiga hiti. Engin aska komin í Keflavík.
Áhorfendur: 1063
Dómari: Örvar Sær Gíslason
Maður leiksins: Finnur Ólafsson, ÍBV
Leik lokið: Frábær sigur Eyjamanna sem voru miklu betra liðið að minnsta kosti í fyrri hálfleik. Viðtöl og umfjöllun koma síðar í kvöld.
90.mín: Andri Steinn átti að fá klárlega beint rautt spjald. Hrinti Denis Sytnik, en Örvar Sær lét sér ekki segjast og gaf honum einungis gult spjald.
88.mín: Nú fer hver að vera síðastur að minnka muninn fyrir Keflavík. Tvær mínútur eftir af venjulegum leiktíma.
84.mín: Keflavík gerir síðustu breytingu sínu í dag. Útaf fer leikmaður númer sjö, Jóhann Birnir Guðmundsson, og inn í hans stað kemur sonur aðstoðarþjálfara Keflavíkur, Bojan Stefán Ljubicic.
83.mín: 1063 áhorfendur lögðu leið sína á völlinn í dag.
79.mín: Ian Jeffs með flotta stungusendingu inná Denis Sytnik sem var kominn í ansi gott færi, en skaut hárfínt framhjá.
Twitter: Ómar Ingi
thegar madur er med #flur eins og andri steinn tha klippir madur bara ermarnar af treyjunni #fotbolti #showoff
75.mín: Heimamenn eru mikið mun meira með boltann þessa stundina og sækja án afláts. Eyjamenn gera hins vegar skiptingu, Guðmundur Þórarinsson fer af velli og Brynjar Gauti Guðjónsson kemur inná.
68.mín: Andri Steinn Birgisson átti skot rétt í þessu sem fór í stöngina og rann eftir línunni. Keflvíkingar vildu meina að boltinn hefði farið inn, en aðstoðardómarinn Einar Sigurðsson dæmdi ekki mark. Keflvíkingar ósáttir.
64.mín: Keflvíkingar fengu aukaspyrnu á hættulegum stað, en Andri Steinn tók spyrnuna og hún var afleit, himinhátt yfir markið.
61.mín: Eina sem er að gerast þessar mínúturnar eru skiptingar. Keflvíkingar gera tvöfalda breytingu núna, Hilmar Geir Eiðsson og Magnús Sverrir Þorsteinsson fara af velli og þeir Grétar Ólafur Hjartarsson og Magnús Þórir Matthíasson koma inná.
58.mín: Eyjamenn gera sína aðra breytingu á liði sínu. Ian David Jeffs kemur inn í stað Andra Ólafssonar, sem hafði rétt eins og Tryggvi átt mjög góðan dag.
56.mín: Andri Ólafsson lagði boltann á Þórarinn Inga sem var einn á auðum sjó í teignum, en Ómar varði virkilega vel. Fyrsta varða skotið í leiknum í dag!
49.mín: Keflvíkingar eru allir að hressast. Jóhann Birnir Guðmundsson átti rétt í þessu hættulega aukaspyrnu sem Eyjamenn náðu að hreinsa frá.
46.mín: Eyjamenn gerðu breytingu á sínu liði í hálfleik. Tryggvi Guðmundsson, sem hafði spilað frábærlega, þurfti að fara af velli og inná í hans stað kom Denis Sytnik. Sjúkrabíll var að keyra frá vellinum og spurning hvort Tryggvi hafi þurft að fara uppá sjúkrahús.
Hálfleikur: Eyjamenn leiða 2-0 í hálfleik - fyllilega verðskuldað, en gaman verður að sjá hvort Keflvíkingar mæta til leiks í síðari hálfleik.
32.mín: Keflvíkingar virðast aðeins vera að vakna. Lítið sem ekkert að gerast í leiknum þó þessa stundina. Stuðningsmenn heimamanna eru aðallega að pirra sig á dómgæslunni, en nánast það eina sem heyrist úr stúkunni Keflavíkurmegin eru kvartanir vegna dómgæslu.
26.mín: Títtnefndur Tryggvi átti skot rétt í þessu af rúmlega 40 metra færi. Kappanum hefur aldrei skort sjálfstraust, en hann hefur verið virkilega góður í dag það sem af er leiks.
22.mín: Tryggvi virðist ansi heitur og átti nú rétt í þessu skot sem fór rétt yfir markið. Willum skilur ekkert hvað er í gangi og klórar sér bara í hausnum.
19.mín: Góð sending inn fyrir vörn Keflavíkur frá Kelvin Mellor og þar var Guðmundur Þórarinsson, en hann skaut rétt framhjá markinu. Það kæmi mér ekkert á óvart þótt að þriðja markið myndi koma hér bráðlega og það Eyjamegin.
Twitter: Sigurður Ólafur
Tóti klarar keflavik #alvurumadur #fotbolti
14.mín: Eyjamenn hafa verið frábærir hérna á upphafsmínútunum. Willum Þór er ekki parsáttur með sína menn og galar og gólar hér á línunni, skiljanlega.
9.mín: MAAAAAAARK! Eyjamenn eru búnir að skora aftur!! Andri Ólafsson með frábært skot og boltinn beint í hornið. Keflvíkingar eru greinilega ekki vaknaðir og Eyjamenn nýta sér það.
Twitter: Sturlaugur Haraldsson
Leikurinn varla byrjaður og TGvélin búin að setja eitt Keflavík 0 - 1 ÍBV #fotbolti
1. mín: MAAAAARK! Það voru ekki liðnar nema fimmtíu sekúndur þegar Andri Ólafsson stakk boltanum á Tryggva Guðmundsson sem þrumaði boltanum í stöng og inn. Flott mark hjá Tryggva og sannarlega góð byrjun hjá ÍBV!
19.59: Allt er klárt og liðin ganga út á völlinn. Ekki er þó mikið af fólki, en nokkuð kalt er í veðri og spurning hvort það hafi áhrif á mætinguna.
Twitter: Smári Jökull Jónsson
Kominn tími á að ÍBV taki sigur í Kef, markatalan í síðustu tveimur leikjum Kef og ÍBV suður með sjó er 10-2 Kef í vil #Fotbolti
19.46: Nú eru fjórtán mínútur í leik og eru fjórar breytingar á liði Eyjamanna. Abel Dhaira, Finnur Ólafsson, Tonny Mawejje og Tryggvi Guðmundsson koma allir inn, en þeir Albert Sævarsson, Jordan Connerton, Dennis Sytnik og Bryan Hughes detta allir úr liðinu.
19:34: Örvar Sær Gíslason er dómari í dag og honum til aðstoðar eru þeir Einar Sigurðsson og Sverrir Gunnar Pálmason. Vonandi munu þeir eiga toppleik í dag!
19:24: Bæði lið eru nú kominn út á völl og byrjuð að hita upp. Bullandi rokk er á fóninum. Albert Sævarsson er ekki í hópnum hjá ÍBV í dag, en hann er líklega meiddur.
19:15: Hér kemur textalýsing af Nettóvellinum í Keflavík þar sem heimamenn taka á móti ÍBV. Byrjunarliðin eru klár og þau má sjá hér að neðan. Við minnum Twitter-notendur á að nota hashtagið #fotbolti ef þeir tísta um leikinn.
Keflavík: Ómar Jóhannsson, Brynjar Örn Guðmundsson, Haraldur Freyr Guðmundsson, Adam Larsson, Goran Jovanovski, einar Orri Einarsson, Andri Steinn Birgisson, Jóhann Birnir Guðmundsson, Magnús Sverrir Þorsteinsson, Guðmundur Steinarsson, Hilmar Geir Eiðsson.
Varamenn: Árni Freyr Ásgeirsson (m), Bojan Stefán Ljubicic, Ásgrímur Rúnarsson, Magnús Þórir Matthíasson, Magnús Þór Magnússon, Grétar Ólafur Hjartarson, Viktor Smári Hafsteinsson.
ÍBV: Abel Dhaira, Kelvin Mellor, Eiður Aron Sigurbjörnsson, Rasmus Christiansen, Matt Garner, Andri Ólafsson, Tonny Mawejje, Finnur Ólafsson, Guðmundur Þórarinsson, Tryggvi Guðmundsson, Þórarinn Ingi Valdimarsson.
Varamenn: Brynjar Gauti Guðjónsson, Yngvi Magnús Borgþórsson, Anton Bjarnason, Arnór Eyvar Ólafsson, Denis Sytnik, Guðjón Orri Sigurjónsson (m), Ian Jeffs.
Stöðutaflan

L | U | J | T | ms: | mf: | mun | Stig | ||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 |