
Haukar 1 - 3 Keflavík:
0-1 Guðmundur Steinarsson ('3)
0-2 Andri Steinn Birgisson ('20)
1-2 Hilmar Trausti Arnarsson ('32)
1-3 Jóhann Birnir Guðmundsson ('75)
0-1 Guðmundur Steinarsson ('3)
0-2 Andri Steinn Birgisson ('20)
1-2 Hilmar Trausti Arnarsson ('32)
1-3 Jóhann Birnir Guðmundsson ('75)
Guðmundur Steinarsson skoraði fyrsta mark leiksins á Ásvöllum í kvöld þegar Haukar og Keflavík mættust í 16-liða úrslitum Valitors-bikarsins. Guðmundur skallaði þá boltann í netið eftir fyrirgjöf frá Magnúsi Þóri Matthíassyni eftir einungis þriggja mínútna leik.
Annað skalla markið í leiknum leit dagsins ljós á 20. mínútu og það kom frá Andra Stein Birgissyni eftir hornspynu. Þar áður átti Benis Krasniqi fyrstu skot tilraun Hauka en skot hans nokkuð kraftlaust og því engin hætta sem stafaði að því skoti.
Þriðja skalla mark leiksins kom síðan frá Haukum. Fyrirliðinn, Hilmar Trausti Arnarsson skallaði þá boltann í netið eftir aukaspyrnu frá Ásgeiri Þór Ingólfssyni eftir rétt rúmlega hálftíma leik.
Það var því orðinn fótboltaleikur að nýju á Ásvöllum eftir hálftíma leik, því útlitið var ekki gott fyrir Haukamenn eftir hálftíma leik og 0-2 undir gegn Pepsi-deildarliði. En hlutirnir eru fljótir að snúast við og Haukarnir nýttu sér það.
Stuttu eftir fyrsta mark Hauka í leiknum sluppu þrír Keflvíkingar einir gegn Daða Lárussyni, þeir Guðmundur Steinarsson, Jóhann Birnir Guðmundsson og Magnús Þórir Matthíasson. Magnús Þórir skaut að marki en Daði Lárusson náði að verja boltann, þeir voru síðan stuttu seinna dæmdir rangstæðir.
Síðasta færi fyrri hálfleiksins átti síðan Úlfar Hrafn Pálsson þegar hann var kominn í ágætis stöðu inn í vítateig Keflavíkingur en skot hans tiltölulega beint á Ómar Jóhannsson í marki Keflavíkingur.
Staðan í hálfleik 2-1 fyrir gestunum í Keflavík. Nokkuð sanngjörn staða, Keflvíkingar voru sterkari aðilinn til að byrja með en Haukar sýndu nokkra lipra takta eftir að þeir náðu að skora sitt fyrsta mark í leiknum.
Fyrsta færi seinni hálfleiksins, áttu heimamenn í Haukum. Hilmar Trausti Arnarsson átti þá góða aukaspyrnu að marki Keflavíkingur sem Ómar missti úr höndum sér og Keflvíkingar hreinsuðu ekki lengur en rétt fyrir utan teig, þar sem Björgvin Stefánsson var og tók við boltanum og skaut að marki Ómars, sem tók eina góða sjónvarpsvörslu og í horn.
Haukar voru mun sterkari aðilinn í seinni hálfleik, eftir hálftíma leik fékk Aron Freyr Eiríksson algjört dauðafæri fyrir Hauka. Hann hafði nægan tíma til að taka boltann niður en ákvað í stað þess að skalla að markinu og yfir fór boltinn.
Þegar korter var eftir af leiknum juku Keflvíkingar muninn í tvö mörk, líklega gegn gangi leiksins. Haukar voru að reyna byggja upp sókn þegar Keflvíkingar brutu hana upp og Jóhann Birnir Guðmundsson fékk stungu sendingu innfyrir vörn Hauka, Daði Lárusson hljóp út úr teignum, Jóhann var undan í boltann og lagði boltann í autt markið.
Róðurinn varð erfiðari fyrir vikið hjá Haukum eftir þetta mark, en baráttan í leiknum minnkaði þó ekki. Daníel Einarsson varnarmaður Hauka fékk að líta gula spjaldið fyrir góða eins og hálfa fóta tæklingu og vildu sumir fá að sjá annan lit á spjaldinu.
Síðasta tækifæri Hauka í leiknum átti Hilmar Trausti Arnarsson þegar hann átti aukaspyrnu sem fór rétt framhjá fjærstönginni.
1-3 útisigur Keflvíkinga staðreynd á Ásvöllum og því komnir áfram í 8-liða úrslitin í Valitor-bikarnum. Haukar geta hinsvegar farið að snúa sér alfarið af 1.deildinni en eftir góða byrjun þar hefur stiga fjöldin eitthvað látið fara minna fyrir sér að undanförnu.
Frans Elvarsson kom inn á í liði Keflavíkur og spilaði síðasta hálftímann. Frans fékk leikheimild að nýju með Keflavík í dag en hann hefur verið á láni hjá Njarðvík í sumar.
Byrjunarlið Hauka: Daði Lárusson, Kristján Ómar Björnsson, Úlfar Hrafn Pálsson (Þórður Jón Jóhannesson('87)), Hilmar Trausti Arnarsson, Björgvin Stefánsson (Aron Jóhannsson ('85)) , Ásgeir Þór Ingólfsson, Aron Freyr Eiríksson, Daníel Einarsson, Benis Krasniqi, Grétar Atli Grétarsson (Gunnlaugur Fannar Guðmundsson ('38)), Ísak Örn Þórðarson.
Varamenn Hauka: Þórir Guðnason, Enok Eiðsson, Ísak Örn Einarsson, Guðmundur Viðar Mete.
Byrjunarlið Keflavíkur: Ómar Jóhannsson, Adam Larsson, Guðjón Árni Antoníusson, Haraldur Freyr Guðmundsson, Einar Orri Einarsson, Jóhann Birnir Guðmundsson (Arnór Ingvi Traustason('88)), Andri Steinn Birgisson (Frans Elvarsson ('65)), Guðmundur Steinarsson, Hilmar Geir Eiðsson (Magnús Sverrir Þorsteinsson ('56)), Brynjar Örn Guðmundsson, Magnús Þórir Matthíasson.
Varamenn Keflavíkur: Árni Freyr Ásgeirsson, Bojan Stefán Ljubicic, Ásgrímur Rúnarsson, Viktor Smári Hafsteinsson.