þri 09. desember 2003 00:00
Elvar Geir Magnússon
Boumsong ætlar til Rangers
Boumsong í baráttu við Ljungberg.
Boumsong í baráttu við Ljungberg.
Mynd: Elvar Geir Magnússon
Franski landsliðsvarnarmaðurinn Jean-Alain Boumsong hefur staðfest að hann ætli að ganga til liðs við skoska liðið Glasgow Rangers frá Auxerre. Hann er 23ja ára og verður laus allra mála hjá franska liðinu í lok tímabilsins. Þetta kemur mjög á óvart þar sem búist var við að hann færi til Liverpool.

Boumsong viðurkennir að hafa haft áhyggjur af því að með því að ganga til liðs við skoskt lið myndi hann minnka líkurnar á landsliðssæti. En landsliðsþjálfari Frakka, Jacques Santini, hefur sagt honum að hafa engar áhyggjur af því.

"Hann sagði að Rangers væri stórlið alveg eins og Marseille eða Inter Milan. Það mikilvægasta væri að ég spilaði í Meistaradeildinni eða allavega Evrópukeppni félagsliða. Það mun ég gera hjá Rangers. David Murray og Alex McLeish heilluðu mig og það var komið rosalega vel fram við mig í Skotlandi. Þeir sýndu það svo sannarlega að þeir vilja fá mig og eru reiðubúnir að leggja fram tilboð." sagði Boumsong.

"Ég hef líka talað við önnur lið eins og Liverpool, Arsenal og Inter Milan. Þeir eru stanslaust að segja mér að bíða. Ég nenni ekki að bíða eftir þeim á meðan lið eins og Rangers sýnir hve mikið þeir vilja fá mig til Glasgow."
Slapp
banner
banner