Jón Ólafur Daníelsson þjálfari ÍBV var að vonum ekki sáttur við 2-0 tap gegn Fylki í Árbænum í kvöld. Hann vildi meina að bikarleikurinn gegn Aftureldingu sem fór í framlengingu og vítaspyrnukeppni á laugardag hefði setið í liði sínu en nefndi einnig að hann væri óánægður með framlag nokkurra leikmanna að undanförnu og að einhverjar breytingar gætu orðið hjá ÍBV í félagaskiptaglugganum sem opnar eftir 10 daga.
„Þetta gekk ekki nógu vel. Ég óttaðist að leikur laugardagsins myndi sitja lengi í okkur og það kom í ljós eftir markið að við vorum bara of þreyttar."
„Mér fannst við ívið sterkari í fyrri hálfleik og mér fannst við yfirspila þær í seinni hálfleik fram að markinu og þá bara var loftið úr okkur," sagði Jón Ólafur.
ÍBV-liðið byrjaði sumarið frábærlega en það hefur aðeins hallað undan fæti að undanförnu. Jón Ólafur er ekki ánægður með það og segir að ákveðnir leikmenn hafi hreinlega týnst í síðustu leikjum.
„Það getur vel verið að blaðran sé sprungin en leikmenn voru að spila á réttri getu í upphafi. Svo eru bara vissir leikmenn sem hafa týnst aðeins en sem betur fer er félagaskiptaglugginn að opna og hver veit hvað hann ber í skauti sér."
„Það hafa margir leikmenn hafa haft samband sem vilja koma til ÍBV. Það eru vissir leikir sem þurfa aðeins að spýta í lófana og þær hafa Valsleikinn til þess. Ef þær ætla að vera líflausar þar þá kannski gerum við eitthvað."
Nánar er rætt við Jón Ólaf í sjónvarpinu hér að ofan.






















