Næstkomandi sunnudag klukkan 14:00 hefst stærsti leikur sumarssins í Símadeildinni. Þá mætast Fylkir og KR á Árbæjarvelli og ef Fylkismenn vinna leikinn verða þeir Íslandsmeistarar, vinni KR-ingar þá verða þeir með tveimur stigum meira en Fylkir fyrir síðustu umferðina. Eins og gefur að skilja er búist við miklum mannfjölda á leikinn þrátt fyrir að hann sé í beinni útsendingu á sjónvarpsstöðinni Sýn. Fylkismenn búast við að geta selt 4500 manns miða á leikinn en samkvæmt vallarskráningu KSÍ tekur völlurinn aðeins við 2000 áhorfendum.
![]() |
Mesti áhorfendafjöldi sem hefur komið á leik á Fylkisvellinum var 2934 í leik gegn ÍA fyrir nokkrum árum. Þá voru engar sérstakar ráðstafanir gerðar til að koma fólkinu fyrir. Stúkan sjálf tekur um 2000 manns í stæði en auk þess er nú verið að vinna í því að raða vörubrettum í grasbrekkurnar beggja vegna við stúkuna, vörubrettin eru fengin að láni frá Vífilfelli og Eimskip en velunnarar félagssins vinna á kvöldin við að raða brettunum upp svo vel geti farið um áhorfendur á sunnudaginn. Þegar þessum aðgerðum er lokið á að vera mögulegt að koma 4500 áhorfendum við völlinn, og eins og gefur að skilja verða engin sæti, allir verða að standa. Reynt verður að stefna þeim sitthvorum megin í stúkunni til að skapa meiri stemmningu, Fylkismenn verða nær Fylkishöllinni en KR-ingar fjær.
![]() |
Þegar svona mikill mannfjöldi safnast saman má búast við mjög mörgum bílum, Fylkismenn vita að bílastæðamálin gætu orðið vandamál á sunnnudaginn en gera þó allt sem í þeirra valdi stendur til að auðvelda gang mála. Þannig hefur verið ákveðið að nota malarvöllinn, sem stendur á milli sundlaugarinnar og Fylkishallarinnar sem bílastæðaplan. Næstkomandi laugardag verður hafist handa við að merkja bílastæði á völlinn með kalkrennum. Bílastæðin eiga að liggja þétt saman og munu 2-3 starfsmenn á vegum félagssins sjá um að vísa fólki í stæði. Að leik loknum verður svo opnaður vegur frá malarveginum sem liggur út hjá Reiðhöllinni, þannig minnkar umferðarþunginn frá svæðinu að loknum leik verulega.
![]() |
Miðasala verður áfram á sama stað og venjulega í Fylkishöllinni en einnig verða seldir miðar í bíl við völlinn auk þess sem starfsfólk félagssins mun ganga á milli og selja fólki sem greiðir með peningum (ekki kortum) miða. Þá verður einnig miðasala á malarvellinum. Eins og venjulega verður fólki hleypt inn á svæðið í hliðinu við Fylkishöllina en að þessu sinni hefur einnig verið bætt við hliði hinum megin á svæðinu. (sjá mynd) Á planinu fyrir aftan þann stað verður komið upp sjoppu og salernisaðstöðu.
![]() |
Forsala aðgöngumiða hófst í dag, fimmtudag. Hún er á bensínstöðvum Esso við Ægissíðu og Ártúnshöfða. Miðaverðið er 1000 krónur fyrir 17 ára og eldri en aðeins 500 kr fyrir börn á aldrinum 12-16 ára. Frítt er svo fyrir 12 ára og yngri.
![]() |
En þetta er ekki allt, þrjár útvarpsstöðvar og ein sjónvarpsstöð munu lýsa leiknum í beinni auk þess sem ein sjónvarpsstöð tekur leikinn upp. Það þarf að finna þessu fólki öllu sómasamlegt stæði við völlinn, stæði sem býður upp á gott útsýni en truflar samt ekki fyrir áhorfendunum. Þess vegna hefur Útvarp KR og Útvarp Sögu verið úthlutað stæði hinum megin við völlinn, þeim megin sem áhorfendur eru ekki, fjær Fylkishöllinni. Ríkisútvarpið mun líklega lýsa leiknum beint úr blaðamannastúkunni en sjónvarpstökuvélar sjónvarpssins verða fyrir aftan varamannabekkina. Sjónvarpsstöðin Sýn ætlar að sýna leikinn beint, þeir verða með 5 tökuvélar á staðnum en enn er ekki búið að ákveða hvar verður mögulegt fyrir þá að koma þeim fyrir, það verður þó gert sómasamlega þannig að allir verða sáttir.
![]() |
Mikið verður af starfsfólki á vegum Fylkis en auk starfsmanna félagssins verða 8-10 björgunarsveitarmenn að störfum á vellinum auk þess sem þeir sjá um umferðarstjórn fyrir leikinn.
![]() |
Fyrir leikinn, klukkan 12:00 hittast ársmiðahafar og gestir þeirra í hátíðarsal félagssins í árlegri síldarveislu en yngri kynslóðin hittist í félagsheimilinu Árseli þar sem boðið verður upp á andlitsmálun og þess háttar. Svo verður gengið fylktu liði niður á völl upp úr klukkan 13:00 og byrjað að hvetja sína menn. Undirbúningur KR-inganna er ekki ósvipaður, opið hús verður í félagsheimili félagssins í Frostaskjóli þar sem boðið verður upp á andlitsmálun, kaffi og kökur. Að því loknu verða strætóferðir uppí Árbæ þar þeir svart hvítu verða hvattir áfram. Byrjað verður að hleypa áhorfendum inn á völlinn uppúr klukkan 13:00.
![]() |
Við höfðum samband við Örn Hafsteinsson framkvæmdastjóra Fylkis og sagði hann að engar ráðstafanir hefðu verið gerðar að hálfu félagssins ef svo lukkulega vildi til að félagið myndi tryggja sér Íslandsmeistaratitilinn á sunnudag en þó væru menn alltaf fljótir að henda upp partíi ef svo bæri undir. Íslandsmeistarabikarinn verður á staðnum, tilbúinn ef Fylkismenn verða Íslandsmeistarar. Hann verður líklega geymdur í bílnum hjá formanni KSÍ þannig að ef til kæmi þá yrði bikarinn afhentur á Fylkisvellinum á sunnudaginn. En Örn hafði blendnar tilfinningar fyrir því að taka á móti titlinum á sínum heimavelli.
,,Ef bikarinn yrði afhentur hér þá yrði það náttúrulega alveg frábært, á heimavelli á móti KR og allur sá pakki. En þá er leikurinn uppá skaga helgina eftir bara píp, Þá um kvöldið er lokaballið hjá okkur og aðdráttaraflið á ballið myndi minnka.”
Að lokum vildi Örn hvetja alla Árbæinga til að koma gangandi á völlinn á sunnudaginn og KR-inga til að nota þær strætósamgöngur sem eru í boði. Einnig vildi hann hvetja fólk til að mæta tímanlega á völlinn því þótt þeir væru með aukafólk í miðasölum í bílum og með töskur á labbinu þá er það þekkt staðreynd að langflestir mæta á síðasta korterinu fyrir leik og þá myndast alltaf traffík. Auk þessa benti hann á að þrátt fyrir að þeir treystu sér til að leysa bílstæðamálin í kringum vallargesti þá verður líka að taka tillit til þeirra sem búa í hverfinu og sundlaugargesta en ef veður verður mönnum hagstætt, munu þeir taka mörg bílastæði.














