Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   fös 12. ágúst 2011 06:30
Snorri Helgason
You´ll never walk alone sungið á Glaumbar á morgun
You´ll never walk alone verður sungið á Glaumbar fyrir leik Liverpool og Sunderland á morgun.
You´ll never walk alone verður sungið á Glaumbar fyrir leik Liverpool og Sunderland á morgun.
Mynd: Guðmundur Karl
Glaumbar opnar formlega á laugardaginn kl. 12:00 en stefnan er að sýna leikina í enska boltanum í beinni í vetur.

Glaumbar mun bjóða upp á fljótandi hressingu yfir leikjunum alla helgina ásamt því að bryddað verður upp á uppákomum í tilefni opnunarinnar.

Skemmtileg uppákoma verður á laugardaginn fyrir aðdáendur Liverpool á Íslandi.

Bryndís Ásmundsdóttir söng og leikkona mun þá ásamt gítarleikaranum Franzi Gunnarssyni úr hljómsveitunum Ensími & Dr. Spock flytja stuðningslag Liverpool, You Never Walk Alone áður en að leikur Liverpool og Sunderland hefst á laugardaginn. Poolarar eru sérstaklega hvattir til að mæta á Glaumbar og syngja með og senda jákvæða strauma til liðsins frá Íslandi.

banner
banner
banner