Elfar Árni Aðalsteinsson, leikmaður Völsungs, er eftirsóttur þessa dagana samkvæmt heimildum Fótbolta.net.
Elfar Árni hefur verið lykilmaður í liði Völsungs undanfarin ár en hann var fyrirliði liðsins síðari hlutann í sumar og í gær var hann valinn í lið ársins í annarri deildinni í vali þjálfara og fyrirliða.
Þessi 21 árs gamli leikmaður verður samningslaus um áramótin og samkvæmt heimildum Fótbolta.net ætlar hann að reyna fyrir sér í Pepsi-deildinni næsta sumar en mörg félög þar renna hýru auga til hans.
Elfar Árni skoraði þrettán mörk í 22 leikjum í annarri deildinni í sumar en hann lék bæði frammi hjá Völsungi sem og framarlega á miðjunni.
Samtals hefur Elfar Árni skorað 39 mörk með Völsungi síðan hann lék sinn fyrsta meistaraflokksleik árið 2006.


