Sigurbjörn Örn Hreiðarsson spilaði sinn síðasta alvöru leik í Valstreyjunni í dag í lokaumferð Pepsi-deildarinnar er Valur mætti KR á Vodafone-vellinum. Sigurbjörn gefið það fram að hann er hættur að spila í Úrvalsdeildinni en hann hefur fengið einhver tilboð úr neðri deildunum á Íslandi.
Lestu um leikinn: Valur 0 - 0 KR
,,Ég er að skoða ýmis mál. Það eru einhver mál komin upp og ég er bara að athuga hvort það gangi ekki allt upp og þá fer það bara í loftið," sagði Sigurbjörn en sögusagnir eru um það að hann sé á leið á Ásvellina og verði þar spilandi aðstoðarþjálfari hjá Haukum.
,,Það kemur í ljós," sagði Sigurbjörn hress og kátur.
Viðtalið í heild sinni er hægt að sjá í sjónvarpinu hér að ofan.





















