Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
HM Álitið: Hver verður efnilegastur?
Þekkir að spila yfir sumarið í Bandaríkjunum - „Held það sé enginn líkami sem geti vanist því"
„Ekki jafn frjálst og á Íslandi, sérstaklega ef maður var í KR“
HM Álitið: Hver verður bestur?
Kennie bestur í maí - „Lengsta frí sem Rúnar hefur gefið mér“
Hákon Arnar: Vona að Messi spili
Gylfi um skilaréttsmálið: Meira en ánægður að hafa skipt
Aron Einar: Get staðfest að ég verð ekki áfram í Al-Gharafa
Sædís Rún: Á okkar degi getum við náð stigum af öllum liðum
Gagnrýnir nýju reglurnar harðlega - „Alveg skelfilegt ef ég á að vera hreinskilin“
Katla Tryggva fyrir Spánarleikinn: Það er alveg hægt að stríða þeim
Hödda langaði að fagna eins og Auðun gegn Haukum - „Allir á bekknum brjálaðir að hann hefði skotið"
Breki Þór: Gott í bankann
Elfar Árni: Það þýðir ekkert að fara að vorkenna sér
Badu: Við sýndum í dag að við erum með góðan hóp
Gunnar Már: Við munum ekki geta hvílt leikmenn
Viðar Örn: Ég hlakka mikið til að spila með honum í næstu leikjum
Óli Flóvents: Þetta mál er að baki
Venni: Þurfum að höndla það betur en síðast
Heimir Guðjóns: Þurfum að finna lausnir
banner
   mán 17. október 2011 17:30
Magnús Már Einarsson
Sigurbjörn Hreiðarsson: Ég þarf að skipta um stuttbuxur
,,Það var eitthvað sem heillaði mig við þetta. Óli (Ólafur Jóhannesson) talaði við mig og spurði hvort ég vildi ekki vinna með sér og mér fannst mjög spennandi. Haukar er líka mjög öflugur klúbbur," sagði Sigurbjörn Hreiðarsson sem samdi í dag við Hauka en hann verður spilandi aðstoðarþjálfari hjá liðinu.

Sigurbjörn, sem verður 36 ára í næsta mánuði, er ekki smeykur við að spila á gervigrasinu hjá Haukum.

,,Ég er í toppmálum segi ég núna. Ég er bara búinn að spila einn gervigrasleik á sumri við Stjörnuna en ég hef engar áhyggjur. Við erum hvort sem er yfir veturinn á þessu gervigrasi og það hefur verið allt í lagi."

Haukar voru lengi vel í baráttu um sæti í Pepsi-deildinni í sumar og á næsta tímabili er stefnan sett upp.

,,Ég held að við getum gert það og við ætlum okkur að vera í þeirri baráttu eins og kannski tíu önnur lið."

Sigurbjörn hefur leikið með Val nánast samfleytt frá árinu 1992 og hann fær að vera áfram í rauðum búning.

,,Þetta er mjög praktískt, ég kem með allt með mér. Ég þarf að skipta um stuttbuxur en annað er það sama," sagði Sigurbjörn hress að lokum.

Hér að ofan má sjá viðtalið í heild sinni.
Slapp
banner
banner