Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   sun 30. október 2011 21:46
Magnús Már Einarsson
Heimild: Twitter síða Damirs Muminovic 
Damir Muminovic í Leikni R. (Staðfest)
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Damir Muminovic, leikmaður HK, hefur gengið til liðs við Leikni R. en þetta staðfesti hann á Twitter síðu sinni í kvöld.

,,Orðinn leikmaður Leiknis R.#staðfest," skrifaði Damir á Twitter nú rétt í þessu.

Þessi 21 árs gamli varnar og miðjumaður er uppalinn hjá HK en hann lék meðal annars með liðinu í Pepsi-deildinni árið 2008.

Í fyrra fór Damir til Hvatar á láni og fyrri hlutann á þessu tímabili var hann í láni hjá Ými sem er varalið HK.

Damir gekk síðan aftur til liðs við HK í júlí, lék tíu leiki í fyrstu deildinni og var valinn bestur á lokahófi félagsins.

Damir er annar leikmaðurinn sem Willum Þór Þórsson fær til Leiknis síðan hann tók við liðinu en Andri Steinn Birgisson kom einnig frá Keflavík í síðustu viku.
banner
banner
banner
banner