Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
   þri 03. janúar 2012 09:30
Hörður Snævar Jónsson
Tómas Leifsson hættur í Fram
Mynd: Fótbolti.net - Hörður Snævar Jónsson
Tómas Leifsson kantmaðurinn frá Hafnafirði mun ekki leika áfram með Fram næsta sumar. Þetta staðfesti hann í samtali við Fótbolta.net.

Tómas hefur leikið með Frömurum síðustu tvö sumur en samtals lék hann 34 leiki fyrir félagið í deild og bikar.

Hann lék þó aðeins átta leiki í Pepsi deildinni í sumar vegna meiðsla en í samtali við Fótbolta.net kvaðst hann á góðri leið með að ná fullum bata.

Tómas sem er 26 ára gamall hafði áður leikið með Fjölni áður en hann gekk í raðir Fram en hann er uppalin hjá FH.

Tómas sem bæði getur leikið sem hægri og vinstri kantmaður segir að einhver lið hafi sýnt sér áhuga en að hann muni skoða málin á næstunni.
Slapp
banner
banner