Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
   fös 27. janúar 2012 15:05
Elvar Geir Magnússon
Stewart Downing: Gagnrýnendur hafa ekki áhrif á mig
Stewart Downing hefur lítið getað síðan hann klæddi sig í búning Liverpool. Þessi 26 ára vængmaður hefur aðeins skorað eitt mark fyrir liðið síðan hann var keyptur á 20 milljónir punda.

Margir hafa skiljanlega sett spurningamerki við þessi kaup Kenny Dalglish. Downing sjálfur segir þó að gagnrýnin hafi ekki áhrif á sig.

„Fjölmiðlar blása hlutina upp en þannig er það bara. Ég loka bara eyrunum, þú getur ekkert gert í því sem er sagt," segir Downing.

„Ég byrjaði nokkuð vel, svo duttu inn slæmir leikir en ég er farinn að finna mig aftur. Ég þarf að leggja hart að mér og persónulega er ég ánægður með stígandann hjá mér síðustu vikur."

„Samband mitt og knattspyrnustjórans hefur verið mjög gott síðan ég kom. Hann hefur gefið mér mikið sjálfstraust. Það sama á við um aðra leikmenn. Það er frábært að spila fyrir hann."
Slapp
banner
banner
banner