Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
   fös 27. janúar 2012 15:16
Elvar Geir Magnússon
Tevez fer líklega ekkert fyrr en næsta sumar
Carlos Tevez mun ólíklega yfirgefa Manchester City í þessum mánuði. Þetta sagði umboðsmaður hans í viðtali við TalkSport.

Kia Joorabchian segir að viðræður hafi átt sér stað en ekkert félag enn náð samkomulagi við City.

„Carlos verður leikmaður Manchester City til sumars. City vill selja hann en bara fyrir tiltekna upphæð," segir hann.

„Félög í dag vilja frekar leikmenn sem eru löglegir í Meistaradeildina. Það er ekki rökrétt að eyða miklum peningi í leikmann sem er ólöglegur í Meistaradeildinni."
Slapp
banner
banner