Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
   fös 27. janúar 2012 16:00
Elvar Geir Magnússon
Twitter dagsins - Grindvíkingar sektaðir fyrir að tísta
Grétar Rafn Steinsson heimsótti skóla.
Grétar Rafn Steinsson heimsótti skóla.
Mynd: Twitter
Þá er komið að daglegri samantekt Fótbolta.net af því helsta sem er að gerast fótboltatengt á samskiptavefnum Twitter. Mikill fjöldi knattspyrnumanna og þeim sem tengjast fótboltaheiminum nota vefinn til að koma hugrenningum sínum á framfæri en við minnum fólk á að nota #fotbolti í færslurnar sínar svo eftir þeim sé tekið.



Auðunn Blöndal, útvarpsmaður:
það finnst öllum Carling Cup einskisverður bikar þar til að liðið þeirra kemst ì úrslitaleikinn ! Sama með hvaða liði þeir halda...

Matthías Örn Friðriksson, leikmaður Grindavíkur:
Sektarsjóðurinn að fara af stað í febrúar #Sektfyrirhverttístsembirtistítwitterdagsins

Pape Mamadou Faye, leikmaður Grindavíkur:
@mattiorn Algjört kjaftæði bara #LetUsTwitt

Hörður Magnússon, íþróttafréttamaður á Stöð 2 Sport:
Sjá tengil, Svo sannarlega er ég ekki skoðanabróðir þessarar síðu en get verið sammála flestu þarna.

Magnús Már Einarsson, ritstjóri Fótbolta.net:
Eitt ár frá því að ,,Twitter dagsins" fór í loftið í fyrsta skipti. Þá voru bara erlendir aðilar þar. Breyttir tímar í dag! #twittervæðing

Oliver Sigurjónsson, leikmaður AGF:
Barca eru betri en Real Madrid. Real Madrid eru hinsvegar betri en Barca að vinna "verri" liðin #ÞaðTelur #LaLiga

Ágúst Þór Ágústsson, leikmaður Fjölnis:
Renndi yfir pistlana á .net og minningargreinarnar í mbl um SteinaGísla, greinileg topp maður þarna á ferð. Blessuð sé minning hans #respect

Tom Cleverley, leikmaður Man Utd:
Var að halda fyrirlestur fyrir leikmenn í yngri liðum Manchester United. Fer nú að horfa á varaliðið!
Slapp
banner
banner