Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
   fös 27. janúar 2012 16:17
Elvar Geir Magnússon
Antonio Conte: Sex stiga leikur á morgun
Antonio Conte, þjálfari Juventus, segir að leikurinn við Udinese á morgun sé sex stiga leikur í titilbaráttunni. Juve er á toppi deildarinnar en Udinese er í þriðja sæti, þremur stigum á eftir.

„Þetta er alvöru leikur milli tveggja liða með sama markmið. Leikur sem er sex stiga virði," segir Conte.

Úrúgvæski varnarmaðurinn Martin Caceres mætti í læknisskoðun hjá Juventus í dag en hann er á leið til félagsins á lánssamningi frá Sevilla.

„Ég hef talað við hann, hann getur spilað í öllum varnarstöðunum. Hann hefur áður spilað hérna á lánssamningi og þarf því ekki að aðlagast."
Slapp
banner