Mark Hughes, knattspyrnustjóri QPR, viðurkennir að félagið sé að reyna að ná samningum við miðjumanninn Samba Diakite hjá Nancy í Frakklandi.
QPR þarf að hafa hraðar hendur því félagaskiptaglugganum verður skellt í lás í næstu viku.
QPR þarf að hafa hraðar hendur því félagaskiptaglugganum verður skellt í lás í næstu viku.
Diakite er sem stendur að taka þátt í Afríkukeppninni með Malí.
Þá hefur Djibril Cisse, fyrrum leikmaður Liverpool, einnig verið orðaður við QPR en Cisse er hjá Lazio á Ítalíu og hefur ekki fundið sig.
Hughes vill þó ekkert tjá sig um hvort félagið sé að reyna að fá Christopher Samba frá Blackburn.




