Lið KR á minningamóti Ragnars Margeirssonar. Sigursteinn Gíslason lék með liðinu en er nú látinn og allur ágóði fer til fjölskyldu hans.
Hið árlega nattspyrnumót til minningar um Ragnar Margeirsson, sem lék m.a. með Keflavík, KR og Fram, verður haldið í Reykjaneshöll laugardaginn 25. febrúar kl. 16:00 - 19:00.
- Leikið verður á 4 litlum völlum (50 x 32).
- Leikmannafjöldi: 6 í liði (5 útileikmenn og markvörður)
- Aldurstakmark er 35 ára
- Hámarksfjöldi liða í mótið eru 16 lið
- Þátttökugjald í mótið er að lágmarki 15.000 kr. á lið
- Staðfestingargjald (5000 kr. - sem dregst frá þátttökugjaldi) skal greitt eigi síðar en 17. febrúar
- greitt inn á eftirfarandi reikning: 121 - 05 - 10026, kt. 180161-4229
- Að móti loknu verður verðlaunaafhending ásamt því sem boðið verður upp á léttar veitingar
Þátttökutilkynningar skal senda á [email protected].
Allur ágóði og fé sem safnast af þessu tilefni, mun renna til styrktar fjölskyldu SIGURSTEINS GÍSLASONAR, sem lést nú fyrir skömmu.
Frjáls framlög einstaklinga og félaga eru auk þess þegin til styrktar fjölskyldu Sigursteins.




