Jónsmessumót Skallagríms verður haldið 23-24. júní 2012 í Borgarnesi pg er fyrir stráka og stelpur í 3.flokki.
Jónsmessumótið er hraðmót bæði fyrir stráka og stelpur í 3, flokki og verður leikið í 7 manna liðum.
Mótið hefst á laugardagskvöldi og er áætlað að fyrstu leikir hefjist kl 20:00. Leikið verður alla nóttina og fram undir morgun og að móti loknu geta allir skellt sér í sund.
Boðið verður upp á ávexti og drykki um nóttina og svo endar mótið með grillveislu þar sem boðið verður uppá hamborgarar. Einnig verður hægt að kaupa samlokur, ávexti og fleira á svæðinu.
Hægt verður að fá gistingu fyrir þá sem vilja eftir keppni í grunnskólanum sem staðsettur er beint fyrir ofan keppnisvellina.
Þátttökugjald er kr. 3000.- á hvern leikmann.
Innifalið í verð er hressing um nóttina, hamborgaraveisla, sund og gisting.
Upplýsinga eru veittar á tölvupósti [email protected] í síma 869-3941 og á www.skallagrimur.is.


