Heimild: Fulham Chronicle
Anton Ferdinand, varnarmaður QPR, fékk senda byssukúlu í pósti. Frá þessu er greint í enskum fjölmiðlum.
Ferdinand fékk þessi óhuggulegu sendingu aðeins degi áður en hann á að spila fyrir QPR gegn Chelsea í enska bikarnum.
Ferdinand fékk þessi óhuggulegu sendingu aðeins degi áður en hann á að spila fyrir QPR gegn Chelsea í enska bikarnum.
Í þeim leik mætir hann John Terry, manninum sem hann ásakar um kynþáttaníð í sinn garð.
Þetta er ekki í fyrsta sinn sem Anton fær hótanir eftir að hafa látið ásakanirnar í ljós. Hann hefur víst ráðið öryggissveit til að vernda sig og fjölskyldu sína í kringum leikinn á morgun.
Leikurinn á morgun verður klukkan 12:00.


