Vængmaðurinn Isaac Cuenca hefur verið tekinn upp í aðalliðshóp Barcelona og gerður við hann nýr samningur til ársins 2015.
Cuenca spilaði sinn fyrsta leik fyrir aðalliðið á síðasta ári en hann er 21 árs og hefur leikið fimmtán leiki með aðalliðinu alls.
Cuenca spilaði sinn fyrsta leik fyrir aðalliðið á síðasta ári en hann er 21 árs og hefur leikið fimmtán leiki með aðalliðinu alls.
Talið er líklegt að hann verði í byrjunarliði Börsunga gegn Villarreal á morgun þar sem David Villa, Ibrahim Afellay, Andreu Fontas, Andres Iniesta og Alexis Sanchez eru allir á meiðslalistanum.
Leikurinn við Villarreal er klukkan 21 annað kvöld.




