Heimild: AP
Bayern Munchen baðst í gær afsökunar á að hafa logið því að stuðningsmönnum sínum að þeir væru að fá nýjan leikmann, bara til að stækka vinahóp sinn á Facebook.
Félagið sagði á vef sínum í gær að eftir fjölda skilaboða frá stuðningsmönnum hafi það áttað sig á að margir væru félaginu mjög reiðir.
,,Okkur þykir þetta leiðinlegt. En það var ekki okkar ætlun að valda vonbrigðum með nýja FC Bayern appinu," sagði Bayern á vef sínum.
,,Heldur vildum við einbeita okkur að ykkur með þessu, til a ðsýna hversu mikilvægur hver stuðningsmaður er Bayern Munchen."
Stuðningsmönnum liðsins var beint á Facebook síðu þar sem tilkynna átti komu nýs framherja á fimmtudaginn. Þar áttu þeir að smella á Like við síðu Bayern til að sjá hver þetta var. Í stað þess að sjá nafn framherja var þeim kynnt app, eða forrit sem heitir ,,Nýja FCB stjarnan."
,,Kæru stuðningsmenn, þið hafi líklega þegar áttað ykkur á að við vorum ekki að kaupa nýjan leikmann. Þetta forrit er fyrir stuðningsmenn okkar til að sýna mikilvægi ykkar fyrir félagið. Hver einasti stuðningsmaður Bayern eru einstök ný kaup. Okkar tólfti maður," stóð á síðunni.
Þúsundir stuðningsmanna brugðust reiðir við og hraunuðu yfir félagið á Facebook síðunni og hafa nú fengið afsökunarbeiðni.

