Heimild: AP
Danska knattspyrnusambandið sagðist í gær hafa dæmt leikmann Lyngby í efstu deild þar í landi í átta leikja bann fyrir að veðja á að hans eigið lið myndi tapa.
Kim Aalbech miðjumður liðsins mun hafa veðjað þrisvar sinnum 6. nóvember, fyrir samtals 1500 danskar krónur á að lið hans myndi tapa leik í dönsku deildinni gegn FC Kaupmannahöfn.
Danska sambandið sagði í tilkynningu sinni í gær að leikmaðurinn hafi komið inná sem varamaður á 71. mínútu leiksins í leiknum og að hann hafi vitað að það væri ólöglegt að veðja á leik sem hann spilaði sjálfur.
Það mun hafa verið lögmaður Lyngby sem tilkynnti danska knattspyrnusambandinu um athæfi félagsins. FC Kaupmannahöfn er á toppi deildarinnar með 39 stig eftir 18 leiki en Lyngby í 11. sæti með 12 stig.

