Heimild: AP
AC Milan gekk í dag frá samningum um að fá framherjann Maxi Lopez á láni frá Catania á Ítalíu en þar með er ljóst að félagið hefur gefist upp á að fá Carlos Tevez frá Manchester City, að minnsta kosti þar til í lok tímabilsins.
AC Milan sagði í yfirlýsingu að félagið ætti möguleika á að kaupa Lopez í lok tímabilsins og að framherjinn hafi gert samning til ársins 2015.
Milan hafði viljað fá Tevez frá Manchester City og Adriano Galliani varaforseti Milan hafði nokkrum sinnum fundað með Argentínumanninum undanfarinn mánuð. Hann mun hafa náð samkomulagi við Tevez en ekki vvið City.
Tevez hefur ekkert spilað fyrir City síðan hann neitaði að hita upp sem varamaður í Meistaraleik gegn Bayern Munchen í september. Galliani sagði í kvöld að hann hafi komist nærri því að ná í Tevez.
,,Við vorum komnir nálægt þessu með City. Ef einhver hefði spurt mig klukkan 18:30 hver myndi koma til Milan þá hefði ég svarað Tevez," sagði Galliani á sjónvarpsstöð félagsins. ,,Hvað um það, við lukum málum á góðan hátt með City og leiðréttum misskilninginn."



