Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
   lau 28. janúar 2012 08:00
Elvar Geir Magnússon
Fylgst með bikarleikjunum í útvarpsþættinum í dag
Mynd: Fótbolti.net
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net á X-inu FM 97,7 verður með óhefðbundnu sniði í dag vegna leikja í ensku bikarkeppninni.

Fylgst verður með gangi mála í viðureign QPR og Chelsea sem hefst 12:00 og einnig í stórleik Liverpool og Manchester United sem verður 12:45. Þeim leikjum verður fylgt til loka.

Einnig verða úrslit skoðuð í Fótbolta.net mótinu þar sem riðlakeppninni lýkur í dag auk þess sem rætt verður um byrjunina á Reykjavíkurmótinu.

Útvarpsþátturinn Fótbolti.net er á X-inu alla laugardaga kl. 12-14. Umsjónarmenn þáttarins eru Elvar Geir Magnússon og Tómas Þór Þórðarson. Hægt er að finna þá á Twitter undir @elvargeir og @tomthordarson.

Þú getur hlustað á X-ið á netinu með því að smella hérna

Slapp
banner