Heimild: AP
Hópur stuðningsmanna Angola hafa keyrt yfir 2500 kílómetra í gegnum fimm lönd til að horfa á leiki í Afríkumótinu sem fer fram í Miðbaugs-Gíneu.
Stuðningsmennirnir sem eru tíu hafa lent í vandræðum á landamærum, þurft að gíma við mikinn hita og skordýrabit á þessari sjö daga ferð upp vesturströnd Afríku.
Jorge Almeida er einn þeirra. Hann er 53 ára gamall eigandi fraktflutninga fyrirtækis. Hann segir að ferðin hafi verið vel þess virði vegna fólksins sem þeir hafa hitt og til að styðja sína menn.
Angola hefur fengið fjögur stig úr tveimur leikjum í B-riðli og í góðum möguleika á að komast áfram.
Um 500 stuðningsmenn Angola hafa tekið yfir íbúðarleigu nærri leikvangnum í Malabo og hafa verið mjög litríkir í leikjum riðilsins. Almeida vonast til að sjá liðið komast áfram áður en löng ferð til baka hefst."

