Watford 0 - 1 Tottenham
0-1 Rafael van der Vaart ('43 )
0-1 Rafael van der Vaart ('43 )
Tottenham komst í dag áfram í fimmtu umferð enska bikarsins þegar liðið bar 1-0 sigur úr bítum gegn Watford á útivelli.
Harry Redknapp var mættur í gryfjuna eftir að hafa setið réttarhöld undanfarna viku vegna skattsvika. Hann fékk eitthvað til að gleðjast yfir í kvöld.
Eina mark leiksins skoraði Rafael van der Vaart á 43. mínútu en þá tók hann skot af 25 metra færi sem markvörður Watford átti að verja. Hann var hins vegar ekki starfi sínu vaxinn í þessu tilfelli og reyndist það heimamönnum dýrkeypt.
Van der Vaart átti svo skot í slá í seinni hálfleik en mörkin urðu ekki fleiri.




