Everton 2 - 1 Fulham
0-1 Danny Murphy ('14 , víti)
1-1 Denis Stracqualursi ('27 )
2-1 Marouane Fellaini ('73 )
0-1 Danny Murphy ('14 , víti)
1-1 Denis Stracqualursi ('27 )
2-1 Marouane Fellaini ('73 )
Everton komst í kvöld áfram í enska bikarnum þegar þeir unnu 2-1 sigur gegn Fulham á Goodison Park.
Danny Murphy skoraði fyrsta mark leiksins þegar Howard Webb dæmdi vítaspyrnu. Boltinn fór í hönd Johnny Heitinga inni í teignum og steig Murphy á punktinn og sendi Tim Howard í vitlaust horn.
Everton jafnaði hins vegar metin þegar hálftími var liðinn af leiknum, en þá skoraði Argentínumaðurinn Denis Stracqualursi sitt fyrsta mark fyrir félagið með skalla eftir fyrirgjöf frá Landon Donovan.
Bandaríski lánsmaðurinn var svo aftur á ferðinni með frábæra fyrirgjöf þegar hann smurði boltanum á kollinn á Marouane Fellaini sem skoraði naumlega framhjá David Stockdale og kom Everton í 2-1.
Fleiri urðu mörkin ekki og sigur Everton því staðreynd.




