Heimild: Sporting Life
Sir Alex Ferguson stjóri Manchester United er sannfærður um að Danny Welbeck muni láta ljós sitt skína á Evrópumótinu 2012 ef hann fær tækifærið.
Skotinn snjalli sagði fyrir tveimur árum að Welbeck væri orðinn nógu góður til að komast inn í landsliðshóp Fabio Capello og hefur skoðun hans skiljanlega ekki breyst síðan þá, enda hefur Welbeck tekið miklum framförum síðan 2010.
Hann hefur þó þurft að glíma við talsverð meiðsli undanfarin ár en spilaði loks sinn fyrsta leik fyrir England síðasta mars.
,,Ég held að hann verði valinn í hópinn. Hann er að breytast í mjög sterkan íþróttamann og þegar hann fer af stað er hann mjög snöggur," sagði Ferguson.
,,Hann var alltaf fínn markaskorari en þegar hann spilar reglulega fyrir okkur er hann að skora mark í hverjum leik."
,,Við bjuggumst við því að hann yrði góður í ár. Við tókum rétta ákvörðun með því að senda hann til Sunderland á síðasta tímabili."





