Rashford orðaður við Bayern - Trafford í markið hjá Newcastle - Trossard á förum frá meisturunum
   lau 28. janúar 2012 10:01
Alexander Freyr Tamimi
Heimild: Sky 
Redknapp: Við vorum heppnir að vinna Watford
Harry Redknapp stjóri Tottenham viðurkennir að sínir menn hafi verið heppnir er þeir nældu sér í 1-0 sigur gegn Watford í enska bikarnum í gærkvöldi.

Mark frá Rafael van der Vaart dugði Tottenham til að komast í næstu umferð en Carlo Cudicini hélt þeim á floti með því að koma í veg fyrir að Watford jafnaði metin.

,,Það er sagt að það sé betra að vera heppinn heldur en góður. Í kvöld (gærkvöldi) vorum við heppnir en ekki góðir. Þetta var ekki það Tottenham lið sem ég þekki," sagði Redknapp, sem hefur ekkert getað stýrt liðinu á æfingum undanfarið.

,,Watford voru frábærir, hreint út sagt stórkostlegir. Við vorum bara heppnir og það dugði. Stundum þarf maður smá heppni og hana höfðum við með okkur í þessum leik."
Slapp
banner