Rashford orðaður við Bayern - Trafford í markið hjá Newcastle - Trossard á förum frá meisturunum
   lau 28. janúar 2012 10:32
Alexander Freyr Tamimi
Heimild: Soccernet 
Gerrard reynir að róa stuðningsmenn Liverpool niður
Steven Gerrard fyrirliði Liverpool vill að stuðningsmenn liðsins hegði sér sómasamlega þegar liðið fær Manchester United í heimsókn á Anfield í enska bikarnum í dag.

Vill hann að leiksins verði frekar minnst sem frábærrar knattspyrnuviðureignar heldur en umdeildra atvika utan vallar.

Þetta er í fyrsta skiptið sem þessir miklu erkifjendur mætast síðan Luis Suarez var með meinta kynþáttafordóma í garð Patrice Evra og dæmdur í átta leikja bann af knattspyrnusambandinu í kjölfarið.

,,Á okkur hvílir sú ábyrgð að sjá til þess að þessa leiks verði minnst fyrir knattspyrnuna inni á vellinum," sagði Gerrard.

,,Liverpool og Manchester United eru miklir erkifjendur og það verður eitthvað skrifað í blöðunum og stuðningsmenn munu metast."

,,En það yrði frábært ef þessa leiks yrði minnst sem frábærs fótboltaleiks og vonandi fyrir okkur, sigurs Liverpool."

,,Við viljum ekki fá einhverjar forsíðufréttir eða sögur um eitthvað sem tengist ekki fótboltaleik á milli tveggja frábærra liða. Megi betra liðið sigra."

Slapp
banner
banner