Heimild: Vefur PSG
Brasilíski varnarmaðurinn Alex gekk til liðs við franska úrvalsdeildarliðið Paris St Germain frá Chelsea í gær. Hann mun leika í treyju númer 13 hjá liðinu, en eitthvað hafði slest upp á vinskap hans við knattspyrnustjórann Andre Villas-Boas.
Alex segir í viðtali við opinbera heimasíðu PSG að franska liðið hafi alltaf verið hans fyrsti kostur eftir að ljóst var að hann myndi yfirgefa Chelsea.
,,París var alltaf minn fyrsti kostur. Síðustu tvo mánuði vildi ég yfirgefa Chelsea og þegar viðræður hófust við PSG var ljóst hvað ég vildi. Ég vissi hversu stórt þetta félag er og ég vildi taka þátt í spennandi verkefni. Ég var undir stjórn Carlo Ancelotti í tvö ár í London og ég er mjög ánægður með að hitta hann hér," sagði Alex.
,,Ég hef verið meistari hjá öllum þeim félögum sem ég hef spilað fyrir og ég vona að það endurtaki sig hér. Ég hlakka líka til að spila í Meistaradeildinni með PSG."




