Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
HM Álitið: Hver verður efnilegastur?
Þekkir að spila yfir sumarið í Bandaríkjunum - „Held það sé enginn líkami sem geti vanist því"
„Ekki jafn frjálst og á Íslandi, sérstaklega ef maður var í KR“
HM Álitið: Hver verður bestur?
Kennie bestur í maí - „Lengsta frí sem Rúnar hefur gefið mér“
Hákon Arnar: Vona að Messi spili
Gylfi um skilaréttsmálið: Meira en ánægður að hafa skipt
Aron Einar: Get staðfest að ég verð ekki áfram í Al-Gharafa
Sædís Rún: Á okkar degi getum við náð stigum af öllum liðum
Gagnrýnir nýju reglurnar harðlega - „Alveg skelfilegt ef ég á að vera hreinskilin“
Katla Tryggva fyrir Spánarleikinn: Það er alveg hægt að stríða þeim
Hödda langaði að fagna eins og Auðun gegn Haukum - „Allir á bekknum brjálaðir að hann hefði skotið"
Breki Þór: Gott í bankann
Elfar Árni: Það þýðir ekkert að fara að vorkenna sér
Badu: Við sýndum í dag að við erum með góðan hóp
Gunnar Már: Við munum ekki geta hvílt leikmenn
Viðar Örn: Ég hlakka mikið til að spila með honum í næstu leikjum
Óli Flóvents: Þetta mál er að baki
Venni: Þurfum að höndla það betur en síðast
Heimir Guðjóns: Þurfum að finna lausnir
   lau 28. janúar 2012 00:30
Alexander Freyr Tamimi
Ásmundur Arnarsson: Sáttur með lokaniðurstöðuna
Ásmundur Arnarsson þjálfari Fylkis var sáttur með 3-2 sigur sinna manna gegn Val í Reykjavíkurmótinu í kvöld. Fylkismenn lentu undir í tvígang en tókst að jafna metin í 2-2 og skora síðan sigurmarkið rétt fyrir leikslok.

Lestu um leikinn: Valur 2 -  3 Fylkir

Þrátt fyrir sigurinn fannst Ásmundi sínir menn þó gera of mikil mistök en er þó ekki að hafa miklar áhyggjur af því.

,,Heilt yfir er ég sáttur með lokaniðurstöðuna, sáttur með að koma til baka og sáttur með baráttuna, þá hluti allavega," sagði Ásmundur við Fótbolta.net eftir leikinn.

,,Það voru margir feilar hjá okkur í dag en það er kannski bara þessi tími. Það er eitthvað til að vinna í."

Miðvörðurinn Hjörtur Hermannsson skoraði fyrsta mark Fylkis og jafnaði metin í 1-1, en hann hefur vakið áhuga hollenska stórliðsins PSV Eindhoven. Ásmundur segir ekki vitað hvort hann verði áfram leikmaður Fylkis þegar Pepsi deildin hefst í sumar.

,,Hann er öflugur, það er klárt. Það verður bara að koma í ljós hvort hann verður með okkur í sumar, við vitum það ekki eins og er. Hann er Fylkismaður í dag og annað verður bara að koma í ljós."
Slapp
banner