Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
HM Álitið: Hver verður efnilegastur?
Þekkir að spila yfir sumarið í Bandaríkjunum - „Held það sé enginn líkami sem geti vanist því"
„Ekki jafn frjálst og á Íslandi, sérstaklega ef maður var í KR“
HM Álitið: Hver verður bestur?
Kennie bestur í maí - „Lengsta frí sem Rúnar hefur gefið mér“
Hákon Arnar: Vona að Messi spili
Gylfi um skilaréttsmálið: Meira en ánægður að hafa skipt
Aron Einar: Get staðfest að ég verð ekki áfram í Al-Gharafa
Sædís Rún: Á okkar degi getum við náð stigum af öllum liðum
Gagnrýnir nýju reglurnar harðlega - „Alveg skelfilegt ef ég á að vera hreinskilin“
Katla Tryggva fyrir Spánarleikinn: Það er alveg hægt að stríða þeim
Hödda langaði að fagna eins og Auðun gegn Haukum - „Allir á bekknum brjálaðir að hann hefði skotið"
Breki Þór: Gott í bankann
Elfar Árni: Það þýðir ekkert að fara að vorkenna sér
Badu: Við sýndum í dag að við erum með góðan hóp
Gunnar Már: Við munum ekki geta hvílt leikmenn
Viðar Örn: Ég hlakka mikið til að spila með honum í næstu leikjum
Óli Flóvents: Þetta mál er að baki
Venni: Þurfum að höndla það betur en síðast
Heimir Guðjóns: Þurfum að finna lausnir
   lau 28. janúar 2012 00:36
Alexander Freyr Tamimi
Kristján Guðmunds: Ætlum alltaf að gera æfingar í hálfleik
Kristján Guðmundsson þjálfari Vals var sáttur með spilamennsku sinna manna þrátt fyrir 3-2 tap gegn Fylki í Reykjavíkurmótinu í kvöld.

Lestu um leikinn: Valur 2 -  3 Fylkir

,,Við vorum mun betri en í fyrsta leiknum á móti Þrótti, langt um betri. Við eigum 14 skot að markinu, sem er svipað og í síðasta leik. Munurinn er að við náðum núna að skora tvö, en við náðum ekki alveg að klára þá og komast tveimur mörkum yfir," sagði Kristján við Fótbolta.net.

Aðalmarkvörðurinn Haraldur Björnsson gekk í vikunni til liðs við Sarpsborg í Noregi og eftir standa þeir Ásgeir Þór Magnússon og Sindri Snær Jensson. Kristján segist ekki ætla að fá nýjan markmann í búrið, heldur muni þessir tveir berjast um stöðu aðalmarkvarðar.

,,Við notum Ásgeir og Sindra í sumar, það er alveg ákveðið. Nú verða þeir bara að berjast um stöðuna. Það er ekki gefið í dag hvor þeirra verður númer eitt, þeir fá að berjast um stöðuna og sýna sig á æfingum og í leikjum."

Einkennileg sjón blasti við áhorfendum í Egilshöll í kvöld, en í hálfleik röðuðu þjálfararnir upp keilum og gerðu leikmenn síðan upphitunaræfingar áður en þeir fóru inn á völlinn á nýjan leik. Kristján segist ætla að beita þessari tækni í sumar til að koma blóði leikmanna á hreyfingu.

,,Það var hugsunin að gera þetta í fyrra en okkur fannst það of mikið miðað við það sem við vorum að gera. En nú ætlum við að gera þetta alltaf, vera ekki of lengi inni í klefanum og vera betur tilbúnir í að byrja seinni hálfleikinn með því að hita upp í þeim hreyfingum sem eru í fótboltanum. Þetta er bara svo að leikmenn séu ekki að mæta í seinni hálfleikinn nýstaðnir upp af bekknum inni í klefa," sagði Kristján að lokum við Fótbolta.net.
Slapp
banner
banner