Markvörðurinn Birna Berg Haraldsdóttir verður ekkert með í Pepsi-deildinni í sumar eftir að hafa slitið krossband í hné í handboltaleik fyrr í mánuðinum.
Birna staðfesti þetta við Fótbolta.net í gær en hún sagði að hún hafi lent í yfirréttu á hnénu með handboltaliði sínu, Fram, gegn Val 14. janúar síðastliðinn. Hún hefur nú fengið staðfest að fremra krossband er slitið og liðþófi rifinn auk annarra meiðsla.
Hún vakti mikla athygli með ÍBV í Pepsi-deildinni í sumar þegar hún hélt markinu hreinu í liði nýliða ÍBV í fyrstu fimm umferðum Pepsi-deildarinnar.
Í 18 leikjum mótsins fékk hún aðeins á sig 15 mörk í sumar.
Rætt er við Birnu í áhugaverðu viðtali hér á Fótbolta.net síðar í dag en þar ræðir hún meðal annars með hvaða félagi hún hefði leikið ef ekki hefði komið til meiðslanna.



