Ekki valin aftur í fótboltalandslið á meðan hún er í handbolta
Birna Berg Haraldsdóttir sem varði mark ÍBV í Pepsi-deild kvenna í fyrrasumar greinir frá því í áhugaverðu viðtali við Fótbolta.net í dag að hún hafi fengið tilkynningu frá Knattspyrnusambandi Íslands í september um að hún verði ekki valin í fótboltalandslið aftur á meðan hún keppir einnig í handbolta.
Birna Berg hefur vakið mikla athygli fyrir frammistöðu sína í báðum íþróttagreinum en hún var með handboltalandsliðinu á Heimsmeistaramótinu í Brasilíu í desember og hafði varið mark ÍBV í Pepsi-deildinni í fyrrasumar þar sem hún áorkaði meðal annars að halda marki sínu hreinu í fyrstu fimm umferðunum. Hún leikur með Fram í handboltanum og var í gær valin í lið umferða 1-9 í N1 deild kvenna.
Hún hefur átt fast sæti í yngri landsliðum Íslands og var fyrst valin í æfingahóp A-landsliðsins 15 ára gömul, ári eftir að hafa orðið Íslandsmeistari í 4. flokki kvenna. Þá hefur hún leikið 37 leiki með U17 og U19 ára landsliðunum. Nú er ljóst að þeim landsliðsferli er lokið í kjölfar ákvörðunar KSÍ nema hún hætti að leika handbolta.
,,Í september á seinasta ári þegar ég var valin í U 19 ára landsliðið í fótbolta og A landsliðið í handbolta á sama tíma, þá valdi ég handboltann framyfir í fyrsta skipti á ævinni en var langt frá því að vera hætt í fótbolta og þetta var engin lokaákvörðun," segir Birna Berg í viðtalinu.
,,Seinna í sömu viku var mér tilkynnt það af KSÍ að ég myndi ekki vera valin aftur í fótboltalandslið á meðan ég væri í handbolta," bætti hún svo við.
Viðtalið verður birt í heild sinni á Fótbolta.net í hádeginu í dag en þar útskýrir Birna hvernig áhugi hennar á fótbolta dofnaði við að fá þau tíðindi að hún komist ekki til greina í landslið en einnig meiðsli sem hún varð fyrir fyrr í janúar sem verða til þess að hún spilar ekki meiri fótbolta á árinu.



