ÍA 1-0 KR
1-0 Eyrún Eiðsdóttir ('70)
Kvennalið ÍA vann góðan 1-0 sigur á KR í æfingaleik sem fór fram í gærkvöldi.
1-0 Eyrún Eiðsdóttir ('70)
Kvennalið ÍA vann góðan 1-0 sigur á KR í æfingaleik sem fór fram í gærkvöldi.
Leikið var í Akraneshöllinni en lið ÍA mun snúa aftur í deildarkeppni næsta sumar og leikur í 1. deild kvenna. Lið KR er í Pepsi-deildinni.
Eina mark leiksins í gær skoraði Eyrún Eiðsdóttir á 70. mínútu eftir að hafa fylgt eftir þrumuskoti Eddu Valdimarsdóttur sem hafnaði í þverslánni.
Veistu úrslit úr æfingaleikjum?
Ef þú hefur upplýsingar um úrslit æfingaleikja og markaskorara endilega sendu okkur þá tölvupóst á [email protected] eða settu úrslitin á Twitter og merktu #fotboltinet



