Rashford orðaður við Bayern - Trafford í markið hjá Newcastle - Trossard á förum frá meisturunum
   lau 28. janúar 2012 11:21
Elvar Geir Magnússon
Þýskaland: Fyrsti sigur Hannover síðan í október
Hannover 1 - 0 Nurnberg
1-0 Mohammed Abdellaoue (18')

Einn leikur var í þýsku úrvalsdeildinni í gær. Hannover vann 1-0 sigur á Nurnberg en Norðmaðurinn Mohammed Abdellaoue skoraði eina mark leiksins.

Þetta var fyrsti sigurleikur Hannover í deildinni síðan í október en liðið hefur gert jafntefli í síðustu fimm leikjum.

Hannover var mætt til að sækja í þessum leik þrátt fyrir að hafa aðeins skorað eitt mark á meðan gestirnir í Nurnberg treystu á varnarleikinn. Það traust var þó til lítils því liðið fór stigalaust heim.
Slapp
banner
banner