Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
banner
   lau 28. janúar 2012 11:48
Ívan Guðjón Baldursson
England: Heiðar byrjar gegn Chelsea
Fyrsti leikur dagsins í 32-liða úrslitum enska FA bikarsins er viðureign úrvalsdeildarliðanna Queens Park Rangers og Chelsea og verður leikurinn spilaður á Loftus Road, heimavelli QPR.

Bæði lið tefla fram sterkum byrjunarliðum en Íslendingurinn Heiðar Helguson byrjar í fremstu víglínu heimamanna á meðan Anton Ferdinand er í miðvarðarstöðunni, en hann fékk byssukúlu senda með póstinum nú á dögunum í hótunarskyni og hefur ráðið öryggissveit til að verja sig og fjölskyldu sína.

John Terry byrjar inná hjá Chelsea en Anton Ferdinand kærði Terry fyrir að sýna kynþáttafordóma síðast þegar þeir mættust og er talið líklegt að byssukúlan sem Ferdinand fékk í pósti hafi komið frá reiðum stuðningsmanni Chelsea.

QPR: Kenny, Hill, Ferdinand, Hall, Young, Mackie, Buzsaky, Barton, Wright-Phillips, Helguson, Smith.
Varamenn: Cerny, Orr, Derry, Hulse, Ephraim, Macheda, Onuoha.

Chelsea: Cech, Ivanovic, Luiz, Terry, Cole, Meireles, Ramires, Sturridge, Malouda, Mata, Torres.
Varamenn: Turnbull, Essien, Romeu, Bosingwa, Lukaku, Cahill, Bertrand.
Slapp
banner