Rashford verður ekki hjá Barcelona á næsta tímabili - Man Utd kemur mikið við sögu í slúðurpakka dagsins
   sun 29. janúar 2012 05:55
Ívan Guðjón Baldursson
Spánn: Leikir dagsins
Fimm leikir eru á dagskrá í spænska boltanum í dag en boltinn byrjar að rúlla vel fyrir hádegi þegar Real Betis á heimaleik gegn Granada, en Real Betis getur komist í áttunda sæti deildarinnar með sigri.

Klukkan þrjú eru svo tveir leikir þar sem Levante mætir Getafe og Real Sociedad fær Sporting Gijon í heimsókn.

Valencia á svo útileik gegn Racing Santander klukkan fimm og lokaleikur dagsins er hálf níu þegar Sevilla á útileik gegn Malaga.

Sunnudagur:
11:00 Real Betis - Granada
15:00 Levante - Getafe
15:00 Real Sociedad - Sporting Gijon
17:00 Racing Santander - Valencia
20:30 Malaga - Sevilla
Slapp
banner
banner
banner