Heimild: Soccerway
Mark Hughes, stjóri QPR, er sammála FA, enska knattspyrnusambandinu, í þeirri ákvörðun um að láta lið sitt ekki taka í hendina á leikmönnum Chelsea fyrir leik liðanna í FA-bikarnum í gær.
,,Þetta var hárrétt ákvörðun," sagði Hughes eftir leikinn. ,,Það var mikið af spennu á stuttum tíma sem setti skugga á það sem var klárlega var aðalmálið, leikurinn í FA-bikarnum, sem við tókum allir þátt í."
,,Anton hefur hegðað sér mjög vel. Ekki bara þessa viku heldur allar vikur. Hann var einnig frábær í þessum leik. Þeta var ekki auðvelt fyrir hann því öll athygli beindist að honum."
Chelsa sigraði leikinn 1-0 með marki Juan Manuel Mata úr umdeildri vítaspyrnu í síðari hálfleik.



