Rashford verður ekki hjá Barcelona á næsta tímabili - Man Utd kemur mikið við sögu í slúðurpakka dagsins
   sun 29. janúar 2012 07:00
Alexander Freyr Tamimi
Heimild: Sporting Life 
Wenger: Oxlade-Chamberlain getur komist á EM 2012
Oxlade-Chamberlain í leik með U21 liði Englands gegn Íslandi.
Oxlade-Chamberlain í leik með U21 liði Englands gegn Íslandi.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Arsene Wenger stjóri Arsenal telur að hinn ungi og efnilegi Alex Oxlade-Chamberlain geti unnið sér inn sæti í enska landsliðshópnum sem fer á Evrópumótið í Póllandi og Úkraínu í sumar.

Chamberlain hefur stimplað sig inn í hjörtu stuðningsmanna Arsenal með flottri spilamennsku þegar hann fær tækifærið, en þessi fyrrum leikmaður Southampton er einungis 18 ára gamall.

Hann er nú þegar í meiri metum hjá stuðningsmönnum Arsenal heldur en Andrei Arshavin, en það ætlaði allt að vera vitlaust þegar rússneski landsliðsmaðurinn kom inn á fyrir Chamberlain í 2-1 tapi liðsins gegn Manchester United.

,,Það er ekki hægt að útiloka að hann verði valinn í landsliðið. Við sjáum hvað gerist næstu þrjá mánuði og ef hann stendur sig vel, af hverju ekki að velja hann?" sagði Wenger.

,,Ég bjóst ekki við því í september að hann myndi þroskast svona hratt því að þá fannst mér hann bara vera stráklingur. Nú lítur hann allt í einu út fyrir að höndla pressuna og hefur persónuleikann til að þrífast á henni."

,,En hann hefur í raun bara spilað einn alvöru stórleik, þannig að við verðum að sjá hversu vel hann gerir."

Slapp
banner
banner