Fjórir leikir eru hér heima í dag sem Fótbolti.net veit um. Klukkan sex mætast KR og Leiknir í hörkuleik í Reykjarvíkurmótinu. Leiknismenn hafa fundið sig gífurlega vel undir stjórn Willums Þórs og KR-liðið er ávallt sterkt.
Með sigri tryggja Leiknismenn sig áfram með Frömurum. Einnig eru tveir leikir í Hleðslu-mótinu fyrir norðan. Þar mætast Dalvík/Reynir og Þór annarsvegar og hinsvegar KA 2 og Völsungur.
Einn æfingarleikur er svo á dagskrá, en BÍ/Bolungarvík mætir Aftureldingu í Kórnum.
Reykjarvíkurmót karla - A riðill:
18:00 KR - Leiknir (Egilshöll)
Hleðslumót - A riðill:
15:15 Dalvík/Reynir - Þór (Boginn)
17:15 KA 2 - Völsungur (Boginn)
Æfingarleikur karla:
16:00 BÍ/Bolungarvík - Afturelding (Kórnum)


