Heimild: Football Italia
Antonio Conte þjálfari Juventus segir að hann hafi virkilega óttast það að mæta Udinese í ítölsku úrvalsdeildinni og vill hann meina að sínir menn þurfi enn að bæta sig á ákveðnum sviðum.
Juventus vann 2-1 sigur þökk sé tveimur mörkum frá Alessandro Matri og eru þeir nú með fjögurra stiga forskot á toppi Seríu A.
,,Ég var virkilega hræddur fyrir þennan leik því að Udinese spilar góðan fótbolta. Þeir eru með marga frábæra leikmenn sem gætu verið í hvaða liði sem er," sagði Conte.
,,Við fundum vel fyrir þreytu eftir bikarleikinn okkar í miðri viku, en við vorum meira með boltann og unnum mikilvægan sigur."
,,Við verðum samt að bæta hvernig við stýrum leiknum. Við töpuðum boltanum of oft á miðjum vellinum og gáfum Udinese færi á að komast í skyndisóknir."
,,Ég var mjög reiður yfir því hvernig við dóluðum á boltanum og létum hann falla í hendur Udinese."

