Heimild: The Guardian
Breska dagblaðið The Guardian birtir heldur ótrúlega frétt á vefsíðu sinni þar sem þeir segja að Liverpool hafi reynt að skipta við Manchester City á þeim Andy Carroll og Carlos Tevez. Segja þeir að City hafi ekki tekið því rausnarlega tilboði.
Einungis er ár síðan Liverpool fékk Carroll til sín frá Newcastle fyrir 35 milljónir punda, en hann stóð sig vel í 2-1 sigrinum gegn Manchester United í dag.
Guardian segir að Liverpool hafi haft samband við City á fimmtudag og spurt hversu mikið þeir vildu fá fyrir Tevez. Þá spurðu þeir einnig hvort að þeir væru til í að skipta beint á honum og Carroll.
Brian Marwood, yfirmaður knattspyrnumála hjá City, á að hafa neitað þessu tilboði samstundis þrátt fyrir að Roberto Mancini hafi sýnt Carroll áhuga þegar hann var á mála hjá Newcastle.
Guardian dregur þá ályktun að þetta tilboð sýni hversu mikið Liverpool vill losna við Carroll, þrátt fyrir að knattspyrnustjórinn Kenny Dalglish hafi hrósað framherjanum.
Carroll hefur einungis skorað sex mörk í 35 leikjum síðan hann varð áttundi dýrasti leikmaður sögunnar og hefur hann ekki náð að festa sér sess í byrjunarliði Liverpool.
Þessa frétt ber þó að taka með góðum fyrirvara, enda eiga bresku blöðin það til að fara frjálslega með sannleikann.


