Rashford verður ekki hjá Barcelona á næsta tímabili - Man Utd kemur mikið við sögu í slúðurpakka dagsins
   sun 29. janúar 2012 07:30
Hafliði Breiðfjörð
Sigurður Ragnar: KSÍ hefur fjárfest í Birnu Berg
Kvenaboltinn
Eins og við sögðum frá í gær fékk markvörðurinn Birna Berg Haraldsdóttir þau skilaboð frá KSÍ í haust að hún yrði ekki valin í landslið í fótbolta á meðan hún leikur einnig handbolta. Hún glímir nú við erfið meiðsli og verður klár í slaginn aftur um áramótin og á þá eftir að gera upp við sig hvorri íþróttinni hún ætlar að einbeita sér að, eða báðum.

Í ítarlegu viðtali um málið í dag útskýrir Sigurður Ragnar Eyjólfsson landsliðsþjálfari kvenna ákvörðun sína í málinu en viðtalið má sjá hér að neðan.

Birna Berg Haraldsdóttir sem varði mark ÍBV í fyrrasumar segir frá því í viðtali við Fótbolta.net í dag að KSÍ hafi tilkynnt henni að hún myndi ekki vera valin aftur í fótboltalandslið á meðan hún væri í handbolta. Hver eru þín viðbrögð við þessu?
Síðastliðið haust kom upp sú staða að Birna Berg var valin í U-19 ára landsliðshóp kvenna í knattspyrnu fyrir undankeppni Evrópumótsins. Á sama tíma var hún valin í vináttuverkefni í A-landsliði kvenna í handbolta. Birna valdi handboltaverkefnið fram yfir. Þetta var alls ekki í fyrsta skipti sem árekstrar urðu hjá Birnu á milli handboltans og fótboltans og við höfum oft rætt við Birnu og tjáð henni þá skoðun okkar að hún sé að missa af mikilvægri markmannsþjálfun með því að æfa ekki knattspyrnu yfir vetrarmánuðina eða megnið af árinu.

Fótbolti er heilsársíþrótt, Birna er efnilegur markvörður en það breytir því ekki að Birna getur náð miklu lengra með því að einbeita sér alfarið að íþróttinni. Með því fengi hún allt að þrisvar sinnum meiri markmannsþjálfun sem er gríðarlega mikilvægt á hennar aldri, að fá leiðsögn og kennslu. Því lengur sem hún heldur áfram í tveimur greinum og tekur aldrei undirbúningstímabil í knattspyrnu og æfir íþróttina aldrei lengur en 3-4 mánuði í senn þvi minni líkur eru á því að hún nái í allra fremstu röð.

KSÍ hefur fjárfest í Birnu Berg. Hún hefur verið aðalmarkvörður yngri landsliða okkar og leikið þar 37 landsleiki. Það er gríðarlegur fjöldi landsleikja og mikilvæg reynsla sem við höfum gefið henni þar. Á meðan hafa aðrir markmenn ekki fengið nærri því eins mörg tækifæri því Birna er vissulega einn efnilegasti markvörðurinn sem við höfum eignast lengi.

Hlutverk yngri landsliða KSÍ er m.a. að búa til framtíðar A-landsliðs konur. Þar fá leikmenn mikilvæga reynslu sem hjálpar þeim þegar þær koma í A-landsliðið. Við stóðum frammi fyrir því í haust að Birna gæti allt eins valið handboltann fram yfir fótboltann og því var tekin sú ákvörðun að nú væri kominn sá tímapunktur að gefa þyrfti öðrum ungum markmönnum reynslu. Það yrði auðvitað frábært ef Birna myndi velja fótboltann sem sína framtíðaríþrótt en ef ekki, þá a.m.k. værum við búin að búa til aukna reynslu fyrir næsta markmann inn með því að spila á þeim markmanni í landsleikjum U-19 ára landsliðsins.

Við vildum ekki setja öll eggin okkar í sömu körfuna og stóla alfarið á einn markmann, gefa henni alla reynsluna í yngri landsliðum og svo færi hún jafnvel í handboltaverkefni þegar við þyrftum á henni að halda og þá sætum við uppi með næsta framtíðar A-landsliðsmarkmann með litla sem enga reynslu í yngri landsleikjum.

Við ræddum því þetta mál innan KSÍ og hjá okkur ríkti einhugur í þessu máli. Í framhaldi af því hringdi ég í Birnu og sagði henni að mér fyndist hún mjög efnilegur markvörður sem ætti þó vissulega margt eftir ólært og það væri mín skoðun að hún þyrfti á meiri markmannsþjálfun að halda og hún væri að fara á mis við þá þjálfun með því að vera megnið af árinu í annarri íþrótt. Við hefðum tekið þá sameiginlegu ákvörðun ég sem A-landsliðsþjálfari og Ólafur Guðbjörnsson sem U-19 landsliðsþjálfari að nú þyrftum við að veita öðrum markvörðum þessa mikilvægu reynslu sem væri að fá í leikjum U-19 ára landsliðs kvenna og á æfingum A-landsliðs kvenna.

Við vonuðumst til þess að hún myndi velja fótbolta en færi svo að hún myndi velja handbolta þá óskaði ég henni góðs gengis þar og það væri þá frábært fyrir handboltaíþróttina og þá ætti hún ekki að líta tilbaka heldur stefna á að ná árangri þar. Hún yrði hinsvegar ekki valin í okkar verkefni á meðan hún stundaði ekki íþróttina okkar betur, við höfðum sýnt henni lengi þolinmæði og skilning því vissulega væri hún mjög efnileg, leikmenn eru stundum í tveimur greinum en nú væri hún orðin það gömul að það væri að líða að þeim tímapunkti að hún þyrfti að velja á milli.

Þetta var ekki síst gert með hennar hagsmuni að leiðarljósi því að sama skapi tel ég ekkert síður mikilvægt fyrir Birnu að velja fljótt handboltann ef það verður hennar ákvörðun því hún mun ekki heldur verða framúrskarandi handboltakona með því að stunda knattspyrnu 3-4 mánuði ársins. Þetta er einfaldlega lögmál í þjálfun, maður verður góður í því sem maður æfir sig og Birna gæti verið að æfa þrisvar sinnum meiri fótbolta en hún hefur gert undanfarin ár. Birna hefur flotið langt á því að vera líkamlega sterk og stór að burðum, hún kastar og sparkar langt og er líkamlega sterk. Hennar framfarir næstu árin byggjast á því að hún bæti tækni sína sem markmaður og snerpu, um það eru markmannsþjálfarar landsliðanna undanfarin ár sammála ásamt okkur þjálfurunum. Hún þarf miklu meiri fótboltaþjálfun.

Nú má fólk auðvitað hafa sínar skoðanir á því hvort þetta sé rétt eða röng ákvörðun. Ég er algjörlega á því að þetta sé rétt ákvörðun og með hagsmuni landsliða KSÍ til framtíðar að leiðarljósi og líka með hagsmuni Birnu að leiðarljósi með tilliti til þess að hún þarf að fara að velja á milli greina.

Ég vil líka að það komi skýrt fram að Birna er alltaf velkomin aftur í að spila með landsliðunum í knattspyrnu um leið og hún kýs að gera knattspyrnu að heilsársíþrótt og sýnir það í verki. Það eru röng skilaboð að fara fram á að allir leikmenn landsliða kvenna æfi aukalega og gera til þeirra miklar kröfur en velja svo leikmann í lið með þeim sem iðkar bara íþróttina 3-4 mánuði á ári. Ég vil ekki vinna svoleiðis með landsliðið því það samræmist ekki þeim gildum sem ég vil standa fyrir sem þjálfari. Þá er verið að mismuna leikmönnum.

Hver tók ákvörðunina, þú sem landsliðsþjálfari eða KSÍ? Það er, ætti hún möguleika á að vera valin í liðið að nýju þegar kemur að því að þú hættir með liðið og eftirmaður þinn veldi hana þó hún iðki handbolta áfram, eða myndi KSÍ koma í veg fyrir það?
Ég tek ákvarðanir hvað varðar mitt landslið og Ólafur Guðbjörnsson U-19 ára landsliðsþjálfari varðandi sitt landslið. Ég get ekki sagt til um hvað minn eftirmaður myndi gera, það yrði hans ákvörðun. En aftur tek ég skýrt fram að Birna Berg mun koma til greina í A-landslið kvenna um leið og hún sýnir í verki að hún ætlar að æfa fótbolta allt árið. Það gæti orðið strax á næsta ári. Ef hún æfir fótbolta allt árið og er nógu góð þá vel ég hana í A-landsliðið.

Er ekki hlutverk landsliðsþjálfara að velja þann leikmann sem er bestur hverju sinni, óháð því hvort hann stundi aðra íþrótt eða ekki? Ef hún er best, þó hún sé í handbolta líka, á hún þá ekki að vera valin?
Þarna kemurðu með góða spurningu og það er pottþétt að fólk hefur skiptar skoðanir um þetta. Hlutverk landsliðsþjálfara er að velja besta liðið hverju sinni. Það er ekki endilega alltaf bestu einstaklingarnir. Fótbolti er liðsíþrótt og stundum þarf að taka erfiðar ákvarðanir sem eru liðinu til góðs en ekki endilega einstaka leikmönnum fyrir bestu. Landsliðið er stærra og meira en hver einstakur leikmaður og séu árekstrar þarf liðið að ganga fyrir.

Mér finnst mjög óeðlilegt að velja leikmann í A-landslið sem æfir ekki íþróttina á fullu, það er mín persónulega skoðun. Ef aðrir eru ósammála þá verður svo að vera. Svona hef ég ákveðið að byggja upp landsliðið og það hefur gengið vel. Við erum að reyna að byggja upp A-landslið sem er samkeppnisfært við bestu landslið í heimi. Ímyndum okkur aðeins hver árangurinn yrði ef allir leikmenn landsliðsins myndu aðeins æfa fótbolta 3-4 mánuði á ári. Væri íslenska þjóðin sátt við það A-landslið? Það lið myndi aldrei ná eins langt og það gæti náð með því að æfa fótbolta árið um kring. Kannski svarar það spurningunni.

Þóra Björg Helgadóttir og Guðbjörg Gunnarsdóttir voru tæpar vegna meiðsla fyrir leik gegn Belgíu í september, þennan sama leik og Birna gaf ekki kost á sér í vegna handboltaæfinga. Þá æfði Sandra Sigurðardóttir með liðinu en gaf svo á endanum ekki kost á sér áfram vegna utanlandsferðar. Hún er samt í landsliðshóp sem æfir þessa helgina. Er verið að mismuna leikmönnum?
Það lá alltaf nokkuð ljóst fyrir að Þóra gæti spilað gegn Belgíu. Okkur vantaði markmann til að æfa með okkur. Þóra og Guðbjörg voru báðar leikfærar, Þóra spilaði leikinn og Guðbjörg var á bekknum, tilbúin að koma inná. Sandra var búin að panta sér fjölskylduferð erlendis og var kölluð inn sem æfingamarkmaður daginn fyrir ferðina. Mér þótti það ekki rétt að fara fram á að Sandra myndi hætta við fjölskylduferð daginn eftir til að mæta á eina landsliðsæfingu og sitja svo uppi í stúku að horfa á leikinn og gaf henni því frí frá æfingunni. Ég þurfti ekki á henni að halda í þennan landsleik. Svo svarið er nei, þarna er ekki verið að mismuna leikmönnum.

Birna Berg er mjög ungur leikmaður, aðeins 18 ára gömul, og segir í viðtali við Fótbolta.net að vegna þessarar ákvörðunar hafi áhuginn á fótbolta dofnað og útilokar ekki að hætta í íþróttinni. Væri ekki slæmt að missa svo efnilegan leikmann úr íþróttinni og er ekki mikilvægt að leikmenn eins og hún njóti stuðnings en ekki hindrunar hjá landsliðsþjálfurum?
Það væri vissulega slæmt að missa Birnu Berg úr íþróttinni og ég vona ennþá að hún velji fótbolta og geri það frekar fyrr en seinna. Að sama skapi væri ennþá verra ef hún myndi hætta og enginn annar markmaður á hennar aldri á Íslandi hefði neina reynslu af yngri landsleikjum. Það væri ekki gott fyrir framtíð A-landsliðs kvenna og einmitt þess vegna var þessi ákvörðun tekin. Það búa því faglegar forsendur að baki Þessarar ákvörðunar.

Það sem er þó mikilvægast í þessu öllu er að Birna nái sér góðri og nái framtíðarárangri með A-landsliði kvenna í handbolta eða fótbolta. Hvora íþróttina sem hún velur mun ég njóta þess að horfa á hana spila. Ég vona að sjálfsögðu að það verði á Laugardalsvelli frekar en í Laugardalshöll. Við munum virða ákvörðun Birnu Berg hver sem hún verður og styðja hana 100% áfram, vonandi sem þjálfarar hennar í knattspyrnu en ef ekki, þá sem stuðningsmenn íslenska handboltalandsliðs kvenna kjósi hún frekar að velja handboltann.
Slapp
banner
banner
banner