Hall vill fara til Man Utd - Líka áhugi Man Utd á Robinson - Mourinho vill fá Gvardiol frá City
Lárus Orri: Var geldur á miðjunni
Aron Baldvin: Fengum feedback frá Arnari
Óskar Borgþórs: Draumadrátturinn minn
Venni: Frábært að geta sett hann inn á
Besta Álitið: Hvaða lið á eftir að snúa genginu við?
Besta Álitið: Hvaða lið getur veitt Víkingum keppni?
Besta Álitið: Hvaða leikmaður fer út í glugganum?
Rokkar um stöður í Noregi - „Alltaf stemning frammi“
HM Álitið: Hvaða lið dettur óvænt út í riðlinum?
Gummi Kri: Skil að þeir séu svekktir
Gaui Lýðs: Einn leikur á þeirri vegferð sem við erum á
Maggi: Geggjað að það sé Megavika núna
Gabríel Aron: Smá skref niður til þess að taka tvö upp
Megaviku Birkir þakklátur: Örugglega svona tuttugu ár síðan
Jökull: Algjörlega galið að eiga þá umræðu hér
HM Álitið: Hvað kemur mest á óvart?
HM Álitið: Hvaða frægi verður mest áberandi í stúkunni?
Albert: Þetta er auðvitað geitin í leiknum
Jón Dagur: Hann braut okkur alveg með fyrstu sendingunni
Orri: Hann byrjaði að skapa mikinn usla á milli línanna
   fös 03. febrúar 2012 16:30
Magnús Már Einarsson
Kristinn Jakobsson: Það er mikil pólitík í þessu
Birkir Sigurðarson, Kristinn Jakobsson og Smári Stefánsson.
Birkir Sigurðarson, Kristinn Jakobsson og Smári Stefánsson.
Mynd: Fótbolti.net - Magnús Már Einarsson
,,Þetta er frábært tækifæri að koma hingað við bestu aðstæður og dæma alvöru leiki," sagði Kristinn Jakobsson þegar Fótbolti.net ræddi við hann á La Manga á Spáni í gær.

Kristinn er staddur á Spáni þar sem hann dæmir á Copa del Sol æfingamótinu en hann dæmir Rosenborg-Gautaborg á morgun og Tromsö-Kalmar á sunnudag ásamt Smára Stefánssyni og Birki Sigurðarsyni sem eru honum til aðstoðar.

Kristinn bíður síðan spenntur eftir næstu niðurröðun hjá UEFA fyrir leiki í Evrópudeildinni.

,,Það eru leikir í febrúar og við krossum fingur og vonumst til að fá tækifæri þar en það er óljóst hvað verður," sagði Kristinn. ,,Maður vonast eftir að fá verkefni því það hefur gengið framúrskarandi vel og maður hefur fengið góða dóma og góða leiki."

Kristinn vonar að fleiri íslenskir dómarar muni fá leiki í stærri mótum í framtíðinni.

,,Ég held að komandi kynslóð komi til með að gera tilkall til þess. Þorvaldur Árnason og Gunnar Jarl eru að koma inn en það tekur tíma að fara þessa leið."

,,Þeir byrja á yngri mótum og minni leikjum en með réttu hugarfari og gæðum þá koma þeir örugglega til með að fá stærri verkefni,"
sagði Krisitnn en hann segir erfitt fyrir íslenska dómara að komast langt.

,,Þetta er búið að að vera mjög erfið ganga því að það er mikil pólitík í þessu og annað slíkt. Við verðum að gera okkur grein fyrir því að við erum frá litlu landi og erum að dæma leiki sem eru ekki á því ,,leveli" sem hin liðin eru að spila á í Evrópukeppni og annað slíkt."

Hér að ofan má sjá viðtalið í heild sinni.
Slapp
banner
banner