Arsenal á höttunum eftir Williams - Liverpool og Manchester-liðin hafa líka áhuga - Juventus í viðræðum við Aston Villa
banner
   lau 04. febrúar 2012 14:26
Ívan Guðjón Baldursson
Championship: West Ham vann erkifjendaslag manni færri
West Ham 2 - 1 Millwall
1-0 Carlton Cole ('45 )
1-1 Liam Trotter ('67 )
2-1 Winston Reid ('70 )
Rautt spjald:Kevin Nolan, West Ham ('9)

Fyrsti leikur dagsins í ensku Championship deildinni var á milli West Ham og Millwall, sem eru sögufrægir erkifjendur frá London. Fjandskapurinn milli félaganna er svo frægur að gerð var mjög vinsæl kvikmynd sem er að hluta til um þann fjandskap, en hún heitir Green Street Hooligans.

Leikurinn í dag var býsna grófur en Kevin Nolan, fyrirliði West Ham, var rekinn af velli með beint rautt spjald eftir aðeins níu mínútna leik.

Carlton Cole kom West Ham yfir rétt fyrir hálfleik en Liam Trotter jafnaði leikinn í síðari hálfleik, þremur mínútum áður en Winston Reid skoraði sigurmark leiksins.

West Ham er nú á toppi deildarinnar með fimm stiga forskot á meðan Millwall er einu sæti yfir fallsæti með fimm stiga forskot á Doncaster og Nottingham Forest sem eru í næstu fallsætum.
Slapp
banner
banner
banner