Arsenal 7 - 1 Blackburn
1-0 Robin Van Persie ('2 )
1-1 Morten Gamst Pedersen ('32 )
2-1 Robin Van Persie ('38 )
3-1 Alex Oxlade-Chamberlain ('39 )
4-1 Mikel Arteta ('51 )
5-1 Alex Oxlade-Chamberlain ('54 )
6-1 Robin Van Persie ('62 )
7-1 Thierry Henry ('90 )
Rautt spjald:Gael Givet, Blackburn ('42)
1-0 Robin Van Persie ('2 )
1-1 Morten Gamst Pedersen ('32 )
2-1 Robin Van Persie ('38 )
3-1 Alex Oxlade-Chamberlain ('39 )
4-1 Mikel Arteta ('51 )
5-1 Alex Oxlade-Chamberlain ('54 )
6-1 Robin Van Persie ('62 )
7-1 Thierry Henry ('90 )
Rautt spjald:Gael Givet, Blackburn ('42)
Fyrsti leikur dagsins á Englandi var viðureign Arsenal og Blackburn á Emirates Stadium heimavelli Arsenal.
Robin van Persie markakóngur deildarinnar var sjóðandi heitur í dag en hann kom Arsenal yfir strax á annarri mínútu. Hálftíma síðar jafnaði Norðmaðurinn Morten Gamst Pedersen en stuttu eftir það kom Persie heimamönnum yfir á nýjan leik og mínútu síðar lagði hann upp þriðja mark heimamanna sem táningurinn Alex Oxlade-Chamberlain skoraði.
Rétt fyrir hálfleik fékk Gael Givet, varnarmaður Blackburn, svo beint rautt spjald fyrir að strauja Robin van Persie sem var gríðarlega líflegur í leiknum.
Spænski miðjumaðurinn Mikel Arteta kom Arsenal í þriggja marka forskot, Chamberlain bætti svo marki við og Persie fullkomnaði þrennuna áður en Thierry Henry skoraði lokamark leiksins í uppbótartíma.



