Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
   lau 04. febrúar 2012 18:40
Ívan Guðjón Baldursson
Pulis: Sjúkdómur sem er að læðast í knattspyrnuheiminn
Tony Pulis, knattspyrnustjóri Stoke City, var óánægður með að Robert Huth, varnarmaður Stoke, hafi fengið beint rautt spjald fyrir tæklingu sem hann átti undir lok fyrri hálfleiks gegn Sunderland.

Huth tæklaði þá David Meyler sem lét sig falla með tilþrifum og segir Tony Pulis að Huth hafi aldrei snert Meyler og að Meyler hafi verið að sýna leikaraskap.

Stoke tapaði leiknum með einu marki gegn engu.

,,Það sem er svekkjandi er rauða spjaldið," sagði Pulis eftir leikinn

,,Robert rennir sér en snertir ekki leikmanninn. Dómarinn verður líka að átta sig á veðuraðstæðunum.

,,Leikmaðurinn (David Meyler) veltir sér um án þess að hafa verið snertur. Leikmaðurinn reynir að fá Huth sendan af velli. Þetta er sjúkdómur sem er að læðast inn í knattspyrnuheiminn."

Slapp
banner
banner