Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
   lau 04. febrúar 2012 18:54
Ívan Guðjón Baldursson
Spánn: Úrslit dagsins
Þremur leikjum var að ljúka á Spáni. Athletic Bilbao og Espanyol áttu gríðarlega mikilvægan leik í evrópubaráttunni en skildu jöfn með þremur mörkum gegn þremur.

Levante gerði þá jafntefli gegn Racing Santander á meðan Mallorca lagði Real Betis í leik þar sem tvö rauð spjöld fóru á loft.

Real Madrid heimsækir svo Getafe klukkan 19:00 en Barcelona á heimaleik gegn Real Sociedad klukkan 21:00 og verða báðir leikirnir sýndir í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport.

Athletic Bilbao 3 - 3 Espanyol
1-0 Oscar de Marcos ('26 )
1-1 Koffi Romaric N'Dri ('33 )
1-2 Vladimir Weiss ('48 )
2-2 Fernando Llorente ('58 )
3-2 Javier Martinez ('65 )
3-3 Juan Angel Albin ('90)

Levante 1 - 1 Racing Santander
1-0 Arouna Kone ('23 )
1-1 Manuel Arana ('61 )

Mallorca 1 - 0 Betis
1-0 Gonzalo Castro ('25 )
Rauð spjöld:Pedro Mario, Betis ('75) - Ivan Ramis, Mallorca ('86)
Slapp
banner
banner
banner